Fjarskiptafyrirtækið Síminn auglýsti um lausar stöður hjá fyrirtækinu á Instagram, en auglýsingin hefur orðið afar umdeild hjá hópnum Málspjallinu á Facebook vegna ensku sem notuð var auglýsingunni. Upplýsingafulltrúi hjá Símanum segir að fyrirtækið muni vanda sig í framtíðinni og sýna íslenskunni virðingu.
„Ímyndaðu þér að vinna hjá fyrirætki þar sem þú getur innið þig upp, kynnist bestu vinum þínum, færð DELICIOUS mat í hádeginu, ljúft kaffi á morgnanna og endalaust af skemmtilegum viðburðum,“ segir meðal annars í auglýsingunni.
Notendur hópsins Málspjallið voru ekki parsáttir við að enska var notuð til að auglýsa íslenskt stórfyrirtæki sem á sér langa sögu hér á landi. Eiríkur Rögnvaldsson prófessor er einn þeirra sem tjáði sig um málið og kvaðst hann hafa sent Símanum póst og krafið fyrirtækið um að breyta auglýsingunni umsvifalaust.
Auglýsingin hefur nú verið tekin úr birtingu og segir Guðmundur Jóhannsson, upplýsingafulltrúi hjá Símanum, íslenskunni verði sýnd virðing í framtíðarauglýsingum.
„Ég átta mig svo sem á því hvað starfsmaður markaðsdeildar hafi verið að hugsa þarna, en ég er ekki viss um að það hafi verið hugsað alla leið. Það þarf að sýna smá ábyrgð þegar íslenskt fyrirtæki er að auglýsa eftir starfsfólki með þessum hætti. Þetta er almennt mál eins og ungt fólk talar í dag, en ekki eins og íslenskt stórfyrirtæki með 117 ára sögu á Íslandi talar,“ segir Guðmundur.
Hægt er að lesa meira hér.