Sigur­jón sagður fara með rangt mál er hann ætlaði að kveða sögur um ó­sannindi í kútinn

Sigur­jón Kjartans­son, einn af eig­endum fram­leiðslu­fyrir­tækisins S800 ehf., sem sá um fram­leiðslu Ára­móta­skaupsins fór með rangt mál í færslur þar sem hann fór yfir fram­leiðslu­ferlið en færslunni var ætlað að kveða þær sögur í kútinn að hann færi með ó­sannindi í málinu.

Þetta kemur fram í frétt DV um málið en tals­verð um­ræða hefur staðið yfir síðustu daga vegna Ára­móta­skaupsins en fram­leið­endur hans þar á meðal Sigur­jón, eiga að hafa staðið í stappi við leik­stjóra þess, Dóru Jóhanns­dóttur.

Heimildingreindi frá því á laugar­­dag að ýmsir erfið­­leikar hefðu komið upp varðandi fram­­leiðslu skaupsins á ný­liðnu ári. Þannig hafi verið þrýst á at­riði yrðu tekin upp í nýjum mið­bæ á Sel­­fossi, en Kristján Vil­helms­­son, út­­gerðar­­maður og einn stofn­enda Sam­herja, á hlut í fram­­leiðslu­­fyrir­­­tækinu S800 ehf. í gegnum fast­­eigna­­þróunar­­fé­lagið Sig­tún sem er ein­mitt á bak við upp­­byggingu nýs mið­bæjar á Sel­­fossi. Þá hefði falin fjár­hags­á­ætlun orðið til þess að upp úr sauð.

Loks var vísað í skýrslu sem Dóra sendi rekstrar­­stjóra RÚV þar sem gerðar voru al­var­­legar at­huga­­semdir við hegðun yfir­­­fram­­leið­enda, fram­­leið­enda og að­­stoðar­­leik­­stjóra.

„Pressan að fara á Sel­foss var mjög mikil frá fyrsta degi. Ekkert var hlustað á sí­endur­teknar óskir leik­stjóra um að fara ekki þangað í tökur og finna frekar aðrar lausnir á spítala­rými til að missa ekki dýr­mætan töku­tíma í ferða­lög. Af einungis 8 töku­dögum eru 2-3 tímar í ó­þarfa ferða­lög mjög dýr,“ sagði meðal annars í bréfi Dóru og kom enn fremur fram að svar starfs­manna fram­leiðslu­fyrir­tækisins við neitunum hennar um að taka upp á Sel­fossi, hafi alltaf verið að að slíkt væri ein­dregin vilji Sigur­jóns Kjartans­sonar, yfir­fram­leið­anda Skaupsins og helmings­eig­anda S800, sem fram­leiddi Skaupið.

Í sam­tali við Heimildina vísaði Sigur­jón því al­farið á bug að pressa hafi verið um að taka upp efni á Sel­fossi og fór yfir málið frá sínum sjónar­hóli.

Þegar um­fjöllun Heimildarinnar kom út steig Sigur­jón svo fram í færslu á Face­book og vildi leið­rétta nokkur at­riði. „Mér er brigslað um að segja ó­satt frá í grein sem hinn nýji miðill Heimildin setti frá sér í gær. Það tek ég nærri mér og vil þess­vegna leyfa ykkur að fá smá inn­sýn í þetta mál,“ skrifaði Sigur­jón og rakti síðan málið.

Meðal annars vildi hann leið­rétta mis­skilning, að hans sögn, um ráðningu Dóru sem leik­stjóra. „ Önnur full­yrðing í þessari grein sem er ekki sann­leikanum sam­kvæm er sú að leik­stjórinn hafi verið ráðinn af RUV. Þannig var það ekki. RUV réð S800 til að fram­leiða Skaupið. Áður hafði þó átt sér stað sam­tal milli leik­stjórans og dag­skrár­stjóra RUV um að hún tæki að sér að leik­stýra þessu skaupi, en það var engu að síður sam­eigin­leg á­kvörðun milli aðila (S800 og RUV) að S800 réði téðan leik­stjóra til verksins. Það virðist því sem eini heimildar­maður þessarar stað­hæfingar sé leik­stjórinn sjálf sem hefur haldið þessum mis­skilningi fram áður,“ skrifaði Sigur­jón.

Í gær­kvöldi birti RÚV síðan frétt þar sem mál­flutningur Sigur­jóns var skotinn niður. Sagði Skarp­héðinn Guð­munds­son , dag­skrár­stjóri RÚV, segir það alltaf vera í höndum RÚV að velja leik­stjóra og yfir­hand­rits­höfund Skaupsins.

Hæg er að lesa ítarlega umfjöllun um málið á vefDv.is

Fleiri fréttir