Sigurður Helgi Guðjónsson formaður Húseigendafélagsins fjallar um klögumál vegna kynlífsóhljóða í fjölbýlishúsum í pistli á Vísi í dag. Þar rifjar hann meðal annars upp „Óp-og stunumálið í Kópavogi“.
„Safaríkasta málið af þessum toga er “Óp-og stunumálið í Kópavogi” sem upp kom fyrir hálfum öðrum áratug og olli því að þjóðin stóð á öndinni yfir lýsingum fólks á rekkjulátum nágranna.“ skrifar Sigurður.
Lýsingar hans á þessu fyndna máli halda áfram, en umfjöllun hans um óhljóðin er sérstaklega skondin.
„Ástarleikirnir voru 3 á dag og stóðu í þrjá tíma hver og hafði svo verið í 7 mánuði áður en sambýlisfólkið bugaðist. Óhljóðin voru ómennsk; sambland af útburðarvæli, spangóli hunds, jarmi kinda og Tarsanöskra eins og Johnny Weismuller, var að gera alla gráhærða með á elliheimilinu.“
Að lokum bætir hann við að í raun hafi þetta óvenjulega mál komið Kópavogi á kortið:
„Fram að þessu var Kópavogur síðasta sort. Menn villtust stundum og höfnuðu þar en enginn kom þangað viljandi. En þetta mál kom Kópavogi á kortið og síðan hefur verið þar rífandi uppgangur og velmegun. Það er gott að búa í Kópavogi.“