Staðan er mjög jákvæð. Hann er kominn á sjúkrahús hér heima og hann er búinn að fara í allar helstu rannsóknir sem hann þurfti að komast í,“ segir Björg Unnur, dóttir Sigurðar Kristinssonar, sem er kominn á sjúkrahús á Akureyri eftir langa dvöl á sjúkrahúsum á Spáni. Sigurður fékk heilablóðfall sem varð til þess að hann lamaðist vinstra megin í líkamanum.
„Ég hef ekki náð að tala við lækni enn þá til að vita hvort þeirra greiningar eru eitthvað öðruvísi en það sem við vorum búin að fá úti. En að öllu öðru leyti gengur þetta fínt. Hann var settur í einangrun til að byrja með, til að athuga hvort að það væru einhverjar sýkingar sem höfðu fylgt honum að utan og það kom vel út,“ segir Björg Unnur.
Hún segir að Sigurður muni strax byrja í endurhæfingu hjá sjúkraþjálfara. Þá ætlar talmeinafræðingur og iðjuþjálfi að skoða hann við fyrsta tækifæri. „Allt sem við vonuðumst efir er að rætast. Kerfið er að taka utan um hann,“ segir Björg Unnur.
Sigurður kom til landsins á miðvikudaginn síðastliðinn og að sögn Unnar hefur fjölskyldan fengið tækifæri til að hitta hann. Unnur segir að ferðalagið frá Spáni hafi verið mikið álag fyrir hann.
„Þetta var mjög erfitt ferðalag fyrir hann, það er áreynsla að fara í flugið í 35 þúsund fetum. Þannig að það var pínu álag fyrir hann. En ég hitti hann í fyrradag og þá var hann tiltölulega hress, miðað við allt,“ segir Björg Unnur.
Hún segir að tilfinningin að fá pabba sinn heim sé ólýsanleg.
„Allt í einu getur maður farið í vinnuna og Bónus án þess að hafa sífelldar áhyggjur. Það er bara hringt í okkur af sjúkrahúsinu ef það er eitthvað að og við fáum að fylgjast með öllu. Þetta er bara allt annað líf fyrir okkur og andlegi léttirinn er ólýsanlegur. Nú er þetta viðráðanlegt verkefni, að eiga aðstandenda sem er að kljást við slíkt áfall,“ segir Björg Unnur.
Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni hér.