Sigurður G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður, spyr á samfélagsmiðli sínum hver beri ábyrgð á rafskútum og óreiðu þeirra víða um borgina, en fólk skilur rafskúturnar eftir þar sem þau hætta að nota þær.
„Hver ber ábyrgð eigandinn, notandinn, borginn sem eigandi stíganna eða kannski sá sem verður fyrir slysi vegna hirðuleysis hins óþekkta,“ spyr Sigurður og birtir mynd af einni slíkri rafskútu.