Sigmundur Ernir Rúnarsson, ristjóri Fréttablaðsins tekur fyrir í Rússnesk stjórnvöld í leiðara sínum sem birtist í Fréttablaðinu í dag undir nafninu „Rússafrekjan" og segir að „Ekki verðir það kallað annað en frekja og yfirgangur þegar rússnesk stjórnvöld ætlast til þess að íslenskir fjölmiðlar fari að kröfum þeirra um myndbirtingar úr ógnvænlegu og hræðilegu stríði sem þau sjálf hafa haft frumkvæði að í austanverðri Evrópu.“
Eins og kunnugt er varð Fréttablaðið fyrir netárás í gær og lágu síður fréttavefs þeirra niðri um nokkurt skeið á föstudagsmorgun. Málið kom upp vegna myndbirtingar á vef Fréttablaðsins en birt var mynd af rússneskum fána sem notaður var sem dyramotta á Úkraínsku heimili.
Rússarnir tóku þessari myndbirtingu alls ekki vel og ákváðu því rússneskir tölvuþrjótar að taka niður vef Fréttablaðsins.
Sigmundur segir að krafa Rússa vegna myndbirtingarinnar sé þessi: „Ef þið dirfist að birta ljósmyndir sem eru okkur til háðungar og smánar skuliði gjöra svo vel að biðjast opinberlega afsökunar á því, ellegar – og það má lesa á milli línanna, megiði hafa verra af.“
Sigmundur segir að með þessu séu Rússar að ráðast gegn frjálsri fjölmiðlun sem er ein af máttarstöðum lýðræðisins.
„En hér er líka kominn munurinn á Íslandi og Rússlandi. Og blessunarlega er hann skýr. Hér er einnig að finna skilin á milli frjálsra lýðræðisríkja og þeirra einræðislanda í heimi hér sem undiroka og beygja lýðinn undir duttlungafullt vald sitt.“ Segir hann í pistli sínum.
En þá er það spurningin: Hvað gera Rússarnir nú ?