Sig­mundur hefur á­hyggjur af skordýraáti og kjöti sem er ræktað

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokksins, hefur miklar á­hyggjur af því að æ fleiri að­hyllist stefnu um að borða skor­dýr og að fram­leiða kjöt í verk­smiðjum. Hann hafi vitað að Vinstri græn og Píratar að­hylltust slíka stefnu en telur að hún sé að breiða úr sér eftir að hann sá slíka frétt frá utan­ríkis­ráðu­neytinu.

Hann segist sjálfur ætla að halda sér frá slíkri stefnu og halda sig við það sem reynst hafi Ís­lendingum best frá land­námi. Með þessi birtir hann mynd af sér með kindum.

„Sá í fréttum að utan­ríkis­ráðu­neytið hefði staðið fyrir ráð­stefnu þar sem var út­skýrt að við ættum að fara að borða skor­dýr og „rækta kjöt” úr stofn­frumum í kerjum. Þetta mun vera liður í að takast á við „ham­fara­hlýnun” og skort á sauð­fjár­bændum í Singa­por­e,“ segir Sig­mundur í færslu á Face­book.

Fleiri fréttir