Siggi stormur: Einstök veðurblíða á landinu öllu

Þessi dagur í dag var einstakur m.t.t. veðurþátta. Landið allt var nánast skýlaust um tvöleytið. Hitinn rétt tæp 22 stig og vindur í lágmarki. Til að gera daginn enn merkilegri gerði um kl. 18 þoku á höfuðborgarsvæðinu.

Hlýrra á Hveravöllum og á Grímsstöðum á fjöllum en í Reykjavík.
-einstök veðurblíða á landinu öllu.

Þá liggur hitauppgjör dagsins fyrir. Hlýjast á landinu var:

Hlýjast varð á Hjarðarland í Biskupstungum (Suðurland): 22,5°C
Mörk á landi (ekki fjarri Árnesi - Suðurland): 22,1°C
Húsafell (Vesturland): 21,8°C
Þingvellir (Suðurland): 20,9°C
Árnes (Þjórsárdalur-Suðurland) 20,8°C

Hitinn á Hveravöllum varð mestur 17,4°C og á Grímsstöðum á fjöllum, mestur 16,7°C. Í Reykjavík komst hitinn hæst í 14,6°C.
Nú rétt fyrir veðurathugun kl. 18 gerði þokan sig gildandi á höfuðborgarsvæðinu og var hitinn kominn niður fyrir 10°C þegar þokan kom, eða féll um tæpar 5 gráður og er enn að falla í þokunni.

Þoku má aðeins skilgreina ef skyggni er minna en 1 km. Ef skyggnið er meira er talað um þokumóðu.

Myndin sem hér fylgir með er einstök. 99% landsins er skýlaust. Þetta gerist ekki oft en gerðist í dag.

Fleiri fréttir