Sif Sig­mars skýtur föstu skoti á þá sem slá skjald­borg um nagla­dekkin: „Hvað um öryggi andar­dráttarins?“

Sif Sig­mars­dóttir, einn vin­sælasti pistla­höfundur landsins, gerir loft­mengun að um­ræðu­efni í nýjasta pistli sínum sem birtur var í Frétta­blaðinu um helgina. Hún segir skað­semi loft­mengunar ó­um­deilda, en sam­kvæmt nýrri rann­sókn megi rekja átta hundruð þúsund ó­tíma­bær dauðs­föll í Evrópu til loft­mengunar á ári hverju.

„Ella Kissi-Debrah væri nú á­tján ára hefði hún lifað. Ella fæddist í Lewis­ham-hverfi í Lundúnum. Hún var hraust barn og orku­mikil, stundaði í­þróttir, var lestrar­hestur og hafði unun af tón­list. Eftir að hafa séð flug­sýningu Rauðu örvanna, list­flugs­veitar breska hersins, á­kvað hún að verða þyrlu­læknir þegar hún yrði stór. Hún skrifaði hernum og bað um að aldurs­tak­markið í ung­liða­hreyfingu flug­hersins yrði lækkað svo að hún mætti byrja að læra að fljúga sem fyrst. Herinn sagðist ætla að skoða málið,“ skrifar Sif. Hins vegar hafi Ella fengið öndunar­færa­sýkingu, þremur mánuðum fyrir sjö ára af­mælið sitt.

„Sýkingin varð að þrá­látum hósta og var Ella greind með astma. Ella hélt á­fram að blómstra, eignast vini og njóta að­dáunar yngri tví­bura­syst­kina sinna sem eltu hana á röndum,“ skrifar Sif, og heldur á­fram:

„En dag einn breyttist allt. Ella fékk svo al­var­legt ast­makast að hún missti með­vitund. Það varð Ellu til lífs að ná­granni kom að henni sem kunni fyrstu hjálp. Viku eftir að Ella út­skrifaðist af spítala fékk hún annað kast. Þegar Ella vaknaði af dái þremur dögum síðar var hún ekki lengur orku­mikla gleði­sprautan sem fjöl­skylda hennar þekkti, heldur sjúk­lingur. Ella gekkst undir fjölda læknis­rann­sókna á Great Ormond Street barna­spítalanum, einum besta barna­spítala heims. Engar skýringar fundust á astma hennar,“ skrifar Sif.

Næstu tvö árin hafi Ella þurft að leggjast inn á spítala þrjá­tíu sinnum vegna öndunar­erfið­leika.

„Hinn 15. febrúar 2013 fékk hún enn eitt ast­makastið. Það reyndist ban­vænt. Ella lést þremur vikum eftir níu ára af­mælið sitt. Dánar­or­sök var skráð sem bráð öndunar­bilun. Við út­för Ellu skreytti Rosa­mund móðir hennar lík­kistu dóttur sinnar myndum af flug­vélum Rauðu örvanna,“ skrifar Sif, og segir að stuttu eftir and­lát Ellu hafi ná­granni komið að tali við Rosa­mund og hvatt hana til að kanna loft­gæði í hverfinu nóttina sem dóttir hennar dó.

„Rosa­mund lagðist í rann­sóknir. Hún komst að því að mengun við fjöl­skyldu­heimilið var að jafnaði langt yfir lög­legum mörkum. Á sama tíma skoðaði Stephen Holgate, prófessor við Há­skóla­sjúkra­húsið í Sout­hampton, and­lát Ellu og tók eftir sláandi fylgni milli sjúkra­hús­inn­lagna Ellu og skyndi­legrar aukningar á loft­mengun. Hann sagði mjög lík­legt að „ef ekki hefði verið fyrir ó­lög­legt magn loft­mengunar hefði Ella ekki dáið.“ Enginn lækna Ellu hafði nokkurn tímann nefnt mengun sem mögu­legan or­saka­vald veikinda hennar,“ skrifar Sif.

Í kjöl­farið hafi Rosa­mund farið þess á leit við breska dóm­stóla að fram­kvæma réttar­rann­sókn og endur­skoða dánar­or­sök dóttur hennar.

„Árið 2020 komst dánar­dóm­stjóri að þeirri niður­stöðu að mengun hefði dregið Ellu Kissi-Debrah til dauða. Var það í fyrsta sinn í heiminum sem loft­mengun var form­lega til­greind sem dánar­or­sök á dánar­vott­orði,“ skrifar Sif

„Um­hverfis­stofnun upp­færir nú á­ætlun um loft­gæði hér á landi. Leggur stofnunin til að um­ferðar­lögum verði breytt og sveitar­fé­lögum fengin heimild til að leggja gjald á not­endur nagla­dekkja.

„Skattur á öryggi fólks,“ sagði Elliði Vignis­son, bæjar­stjóri Ölfuss. „Að­för að öryggi,“ sagði Runólfur Ólafs­son, fram­kvæmda­stjóri Fé­lags ís­lenskra bif­reiðar­eig­enda. Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu­ráð­herra tók í sama streng og sagði ekki standa til að veita sveitar­fé­lögum slíka heimild,“ skrifar Sif, og minnir á að ára­tug eftir and­lát Ellu Kissi-Debrah sé skað­semi loft­mengunar ó­um­deild.

„Sam­kvæmt nýrri rann­sókn má rekja 800 þúsund ó­tíma­bær dauðs­föll í Evrópu til loft­mengunar á ári hverju. Á heims­vísu falla 8,8 milljónir manna ár­lega í valinn af völdum mengunar og svif­ryks. Ætla má að 120 Ís­lendingar látist ár hvert af völdum loft­mengunar,“ skrifar Sif, og hendir fram spurningu til þeirra sem í nafni öryggis slá skjald­borg um nagla­dekkin:

„Hvað um öryggi andar­dráttarins?“

Fleiri fréttir