Sextán ára unglingur var fjarlægður úr strætó af sérsveit ríkislögreglustjóra fyrr í dag. Kemur þetta fram á vef Fréttablaðsins.
Guðmundur Heiðar Helgason upplýsingafulltrúi Strætó staðfesti við Fréttastofu RÚV að sérsveitin hafi farið inn í vagninn í leit að strokufanganum Gabríel Duoane Doama en drengurinn sem fjarlægður var úr vagninum er dökkur á hörund líkt og Gabríel.
Drengurinn var þó ekki handtekinn að sögn sjónarvotta. Sérsveitin umkringdi drenginn og félaga hans og skildi þau svo eftir úti á götu án frekari skýringa.
Lögreglan lýsti í gær eftir Gabríel sem slapp úr haldi lögreglunnar í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem aðalmeðferð í sakamáli gegn honum fór fram. Hann er enn ófundinn.
Móðir drengsins sem var fjarlægður úr strætó er nú með lögreglunni vegna málsins.