Mikill viðbúnaður var í vesturbæ Kópavogs eftir að lögreglu barst tilkynning um skothvell og að vopnaður maður væri á göngu um Kársnesbraut. Hins vegar kom í ljós að maðurinn var ekki vopnaður og málið á misskilningi byggt.
Lögreglan sagði málið vera mjög alvarlegt og var viðbúnaður í samræmi við það. Lögreglumenn vopnuðust og var sérsveit ríkislögreglustjóra kölluð til eins og venjan er við slíkar aðstæður.
Lögreglan handtók manninn, en það reyndist vera misskilningur og reyndist enginn byssumaður hafa verið á ferð í Kópavogi.
Maðurinn og fjölskylda hans var að vonum mjög brugðið vegna aðgerða lögreglu og kallað var eftir áfallahjálp til þess að takast á við þetta óhugnanlega atvik.