Sendir ökumanni hvöss skilaboð - Vonar að ástæðan fyrir ökulaginu hafi verið „það góð að það mátti fórna einni fjölskyldu fyrir hana“

Sendir ökumanni hvöss skilaboð: Vonar að ástæðan fyrir ökulaginu hafi verið „það góð að það mátti fórna einni fjölskyldu fyrir hana“

Facebook færsla ökumanns að nafni Sigurður Svavarsson hefur vakið gífurlega athygli síðastliðinn sólarhring en í færslunni lýsir Sigurður því hvernig hann þurfti að keyra út af veginum í Borgarfirði eftir að ökumaður jeppa ákvað að fara yfir á öfugan vegarhelming.

„Án þess að vilja hljóma dramatískur þá hef ég sjaldan verið jafn hræddur um líf mitt eins og í dag. Ég var að keyra heim að norðan þegar ég varð að keyra útaf til að fá ekki stóran jeppa framan á mig,“ segir Sigurður og bætir við að hann vilji senda ökumanninum skilaboð.

„Ekki honum að þakka að kona mín endaði daginn ekki sem barnslaus ekkja“

Að sögn Sigurðar var ökumaður jeppans að taka fram úr fjórum öðrum bílum í blindbeygju en Sigurður, sem var með tveimur börnum sínum, tveggja og fjögurra ára, þurfti að keyra út af á 90 kílómetra hraða um leið og þeir mættust í beygjunni.

„ Hann þarf ekki að hafa áhyggjur af því að róa börnin mín eftir að við staðnæmdumst utan vegar, því ég gerði það þegar mest af sjokkinu hafði gengið yfir. Hann þarf heldur ekki að hafa áhyggjur af bílnum þar sem svo ótrúlega vill til að þar sem við hentumst útaf var aðeins malarruðningur en ekki skurður, tré eða stórir steinar,“ segir Sigurður í skilaboðunum. „Aðilinn má hins vegar vita að það er ekki honum að þakka að kona mín endaði daginn ekki sem barnslaus ekkja.“

„Ég vona að ástæða þess að þú ókst eins og þú ókst hafi verið það góð að það mátti fórna einni fjölskyldu fyrir hana,“ segir Sigurður enn fremur

Hann bætir við að hann hafi haft samband við lögregluna í kjölfarið og vonar að hún hafi náð honum og tekið hann úr umferð áður en hann veldur frekari skaða. „Kveðja, einn sem er enn að ná sér.”

Færsluna í heild sinni má lesa hér fyrir neðan:

Án þess að vilja hljóma dramatískur þá hef ég sjaldan verið jafn hræddur um líf mitt eins og í dag. Ég var að keyra heim...

Posted by Sigurður Svavarsson on Wednesday, July 29, 2020

Fleiri fréttir