Sendi­herra Kína á Ís­landi: Sam­særis­kenning sem á sér enga stoð í raun­veru­leikanum

„Sam­særis­kenning þess efnis að kóróna­vírusinn hafi átt upp­tök sín í veiru­fræði­stofnuninni í Wu­han (VIW) á sér enga stoð í raun­veru­leikanum,“ segir Jin Z­hijian, sendi­herra Kína á Ís­landi, í að­sendri grein í Frétta­blaðinu í dag.

Þar skrifar sendi­herrann um CO­VID-19 far­aldurinn og svarar meðal annars grein þeirra Þor­geirs Eyjólfs­sonar og Hrafns Magnús­sonar sem birt var á dögunum.

Látið hefur verið að því liggja, einkum í Banda­ríkjunum, að kóróna­veiran hafi átt upp­runa sinn á veiru­fræði­stofnuninni í Wu­han. Hefur Donald Trump Banda­ríkja­for­seti ýtt undir kenningar um þetta.

Margar kenningar og vangaveltur

„Vísinda­menn um heim allan eru að leggja sig alla fram við rann­sóknir í rann­sóknum á upp­runa vírussins og hafa þeir sett fram mis­munandi skoðanir, kenningar og vanga­veltur. Þrátt fyrir þetta hafa hinar al­þjóð­legu rann­sóknir ekki getað greint hvernig hin nýja kórónu­veira dreifðist upp­haf­lega,“ segir hann og bætir við að veiran hafi ekki komið frá veiru­fræði­stofnuninni í Wu­han.

„Áður en fyrsta sýnið frá CO­VID-19 sýktum ein­stak­lingi barst til VIW, þann 30. desember 2019, var enga kórónu­veiru að finna á þeirri rann­sókna­stofu,“ segir hann og bætir við að hingað til hafi enginn starfs­maður VIW sýkst af veirunni. Þá vísar hann í upp­lýsingar Al­þjóða­heil­brigðis­mála­stofnunarinnar þess efnis að allar rann­sóknir bendi til að vírusinn eigi upp­runa sinn í náttúrunni en ekki á rann­sóknar­stofu.

Skjótar og áhrifaríkar aðgerðir

Þá gagn­rýnir hann um um­mæli Þor­geirs og Hrafns þess efnis að Kín­verjar hefðu beðið með það til 3. janúar 2020 að til­kynna fyrstu til­fellin af CO­VID þó þau hefðu greinst í landinu þann 3. desember. Þetta hefði verið til marks um að við­brögð Kín­verja hefðu verið sein og reynt hefði verið að hylma yfir far­aldurinn.

„Sann­leikurinn er hins vegar sá að kín­versk yfir­völd fengu fyrst að­vörun um far­aldurinn eftir hinu opin­bera kerfi þann 27. desember 2019,“ segir hann. Þremur dögum síðar birtu heil­brigðis­yfir­völd í Wu­han niður­stöður um lungna­bólgufar­aldur í borginni. Síðan 3. janúar 2020 hafi Kína gefið WHO og öðrum ríkjum reglu­legar skýrslur um far­aldurinn og þróun hans. Þann 8. janúar hafi Kín­verjar svo greint frá því að or­sök far­aldursins væri ný tegund kóróna­veiru.

Jin rekur síðan að­gerðir Kín­verja í kjöl­farið og segir þær hafa verið skjótar og á­hrifa­ríkar. Jin endar grein sína síðan á þessum orðum:

„Við þurfum ekki á fleiri á­rásum og á­sökunum um leyndar­hyggju að halda, heldur ættum við að taka höndum saman svo al­þjóða­sam­fé­laginu megi auðnast að vinna bug á CO­VID-19, og tryggja bjarta fram­tíð okkar allra.“

Fleiri fréttir