Sif Sigmarsdóttir pistlahöfundur er að vanda beitt í nýjasta pistli sínum í Fréttablaðinu. Þar gerir hún að umfjöllunarefni ríkisstjórnarsamstarf VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og niðurstöður nýrrar könnunar Prósents fyrir Fréttablaðið þar sem kom í ljós að flokkurinn er við það að detta af þingi með 5,9 prósent atkvæða að baki sér, og jafnframt að fylgi þeirra er mest hjá hátekjufólki.
Sif ber veru þeirra saman við efnið DDT sem var notað í seinni heimsstyrjöldinni til að verja hermenn gegn malaríu og taugaveiki. Seinna kom í ljós að efnið er eitur.
„Trú á DDT var bæði óbilandi og blind. En varnarefnið hafði ófyrirséðar afleiðingar. Það skildi eftir sig sviðna jörð. Svo virðist sem VG telji sig varnarefni í ríkisstjórn. En rétt eins og í tilfelli DDT er virkni þess undir væntingum og ófyrirséðar afleiðingar ískyggilegar,“ segir Sif í pistli sínum og heldur svo áfram:
„Hverju tókst VG að afstýra? Sjávarauðlindin er enn í höndum útvalinna. Ríkiseignir eru seldar í skugga ásakana um frændhygli. Forsætisráðherra ber sig eftir undanþágum frá aðgerðum í loftslagsmálum. Á meðan laun bankastjóra Arion banka hækka um 25% milli ára í 7,3 milljónir á mánuði fara hótelþernur í verkfall í von um að dag einn muni laun þeirra duga fyrir framfærslukostnaði.
Vera VG í ríkisstjórn hefur jafnframt gert meinsemdinni, sem flokkurinn þóttist halda í skefjum, kleift að þróa með sér ónæmi. Með því að kjósa VG bauðst hátekjufólki að kjósa óbreytt ástand en fá í kaupbæti móralskt aflátsbréf.“
Pistilinn er hægt að lesa hér.