„Það er engin spurning að þetta er stærsta von míns fags, segir Haraldur og er mjög sannfærður. „Við vitum að geðþjónusta í heiminum er hvergi nægjanleg. Það er ekkert heilbrigðiskerfi sem ræður við þörfina,“ segir Dr. Haraldur Erlendsson
Hann segir okkur þurfa stærri lausnir er geðlækningar og sálfræðimeðferð. Við þurfum grasrótarmenningu fyrir venjulegt fólk til að heila sín persónulegu ferli.
Haraldur segir okkur þurfa „menningarlækningu“. Hann bætir við að von hans sé að þessi vitundarvíkkandi efni geti hjálpa okkur að snúa við blaðinu, öðlast meiri virðingu fyrir lífinu, hjálpi okkur að að tengja við náttúruna, við okkur sjálf og fólkið í kringum okkur.
„Að við getum bæði verið haus og hjarta, getum verið stærri en við erum í dag – við erum svoldið smá“, segir hann að lokum með þunga.
Sjáðu viðtal við Dr. Haraldur Erlendsson í þættinum Undir yfirborði í kvöld á Hringbraut.