Segir söguna halda áfram á Vestfjörðum: Nýfædd folöld bíða dauða

Steinunn Árnadóttir dýraverndunarsinni í Borgarfirði segist enn fá símtöl þar sem hún er spurð hvort hún sé vinur dýranna. Steinunn var i fréttum á árinu vegna vanræktra hrossa og kúa á bæ í Borgarfirði en seint á árinu voru hross fjarlægð af bænum og svo sett á eftirlit vegna vanrækslu dýranna.

„Árið 2022 var látið líðast mjög alvarleg dýraníð, allt undir eftirliti Matvælastofnunar. Og sagan heldur áfram: Á Vestfjörðum eru nýfædd folöld sem bíða dauða síns. Án matar geta mæður þeirra ekki mjólkað þeim og þau að sjálfsögðu drepast. Matvælastofnun veit af því!,“ segir Steinunn í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu sinni í dag.

Hvað varðar bæinn í Dalabyggð segir hún hann hafa fengið sekt en að búskapur haldi áfram á kennitölu eiginkonu bóndans sem hætti að hugsa um dýrin með þeim afleiðingum að 120 kindur drápust og átta nautkálfar.

„Drápust vegna þess að bóndinn hætti að hugsa um þau. Aðilar sem komu að þessu þurftu áfallahjálp,“ segir Steinunn í færslunni sem má lesa hér að neðan.

Myndin í fréttinni er úr safni.

Fleiri fréttir