Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, skorar á stjórnvöld að endurskoða ákvörðun um takmarkanir á landamærunum. Hann segir að sínar upplýsingar bendi til þess að smitin í annarri bylgju faraldursins tengist fyrst og fremst ungu fólki sem fór ónærgætilega um Verslunarmannahelgina. Þetta kemur fram í Facebook færslu þar sem Kjartan segir að ákvarðanirnar muni hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér fyrir Suðurnesin.
„Nú eru áhrif nýrra reglna, sem skylda alla farþega sem koma til landsins í 2 skimanir og 5 daga sóttkví, farnar að koma í ljós. Farþegum um Keflavíkurflugvöll fækkar aftur ört, enda landið í raun lokað, og flugfélög fella niður ekki bara einstaka ferðir heldur áætlanir haustsins og jafnvel vetrarins,“ skrifar Kjartan.
Hann rifjar upp að þúsundir Suðurnesjamanna hafi misst vinnuna síðastliðið vor vegna útbreiðslu COVID-19 en hluti þeirra hafði fengið endurráðningu. Farið hafi verið að birta til en nú sé aftur svart framundan.
„Nú berast fregnir af fyrirhuguðum fjöldauppsögnum á flugvellinum á ný með gríðarlega alvarlegum afleiðingum fyrir fjölskyldur og efnahagslíf á Suðurnesjum en Keflavíkurflugvöllur er uppspretta um 40% efnahagslífs á svæðinu. Það munar um minna.“
Hann segir menn greina á hvort hér sé um nauðsyn að ræða. Samkvæmt upplýsingum Kjartans hafi smitin sem upp hafi komið í seinn faraldrinum fyrst og fremst ungu fólki sem ekki hafði farið nægilega gætilega um Verslunarmannahelgina.
„Og yfirvöld voru búin að ná nokkuð góðum tökum á ástandinu. Ég tel að stjórnvöld séu að taka ákvarðnir sem munu hafa ófyrirsjáanlegar en gríðarlega alvarlegar afleiðingar fyrir Suðurnesin án nægrar ígrundunar. Ég skora á þau að endurskoða þessa ákvörðun og byrja til dæmis á minna íþyngjandi aðgerðum eins og t.d. að skima alla.“