Segir Sam­fylkinguna „pólitískt jaðar­sam­fé­lag vina“ og segir sig úr henni

Pétur G. Markan, upp­lýsinga­full­trúi Biskups­stofu og fyrr­verandi sveitar­stjóri, hefur sagt sig úr Sam­fylkingunni. Á­stæðuna segir hann vera að flokkurinn sé hættur að vera „breið­fylking“ og sé nú orðinn „pólitískt jaðar­sam­fé­lag vina“.

Hann segir í bréfi sem hann sendi til Sam­fylkingarinnar að hann hafi lengi hugsað um málið og að alltaf hafi hann á­kveðið að bíða og sjá, en það geti hann ekki gert lengur.

„Ég hef verið þátt­takandi í Sam­fylkingunni frá upp­hafi fundarins í Borgar­leik­húsinu hvar Sam­fylking - breið­fylking jafnaðar­manna var stofnuð. Fór með mömmu og varð heillaður. Fann mér stað meðal ó­líkra ein­stak­linga með sömu hug­sjón - jöfnuð á breidd sam­fé­lagsins.

Hef á þeim tíma gegnt mörgum trúnaðar­störfum fyrir flokkinn: for­maður ungra jafnaðar­manna í RVK og hef setið sem vara­þing­maður Sam­fylkingarinnar á Al­þingi svo eitt­hvað sé týnt til sem stendur meira upp úr en annað,“ segir hann.

Hann segir að eftir að þessar breytingar hafa orðið á flokknum finni hann ekki lengur að hann eigi erindi innan flokksins eða að hann vilji fylgja honum.

„Það hefur fyrst og fremst birst í því að ég hef ekki viljað gefa kost á mér til trúnaðar­starfa eða verið í fram­boðs hug­leiðingum. Lesið sam­eigin­legt spjall flokksins á netinu og velt fyrir mér hvort það sé ekki ljós að finna annars staðar. Það eru því ekki pólitísk frama-von­brigði eða lista­blús sem eru til grund­vallar þessari á­kvörðun.

Ég verð eftir sem áður jafnaðar­maður í huga og hjarta - þar sem breið­fylking ó­líkra sjónar­miða skipar stefnu landsins. Annað verður ekki nema pólitískt heima­partý. Leyst upp þegar næsti stjórnar­sátt­máli verður undir­ritaður,“ segir Pétur og þakkar síðan fyrir sam­starfið.

Bréfið má lesa í heild hér að neðan.

Eftirfarandi bréf sendi ég á Samfylkinguna í morgun. Ég birti það hér til upplýsingar. Ég ætla ekki að hafa frekari orð...

Posted by Pétur G. Markan on Thursday, 15 April 2021

Fleiri fréttir