Tillaga VG í Reykjavík að beina umferð á einkaþotum og þyrluflugi annað en um Reykjavíkurflugvöll var felld af Samfylkingu, Framsókn, Pírötum og Viðreisn í borgarráði.
Tillagan var upprunalega lögð fram í júlí á þessu ári af Líf Magneudóttir, áheyrnarfulltrúa Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, en í henni var gert ráð fyrir því að borgarstjóra yrði falið að ganga til samninga við samgönguyfirvöld um að beina umferð á einkaþotum og þyrluflugi annað en um Reykjavíkurflugvöll. Slíkar breytingar myndu hafa margs konar jákvæð áhrif á borgina, íbúa hennar og umhverfið. Hljóð- og loftmengun og almennt ónæði yrði minna, öryggi íbúa í miðborginni og í grennd við flugvöllinn myndi aukast og svo samræmist aðgerðin markmiðum borgarinnar í umhverfis- og loftslagsmálum svo fátt eitt sé nefnt.
„Varla er til meira mengandi samgöngumáti en einkaþotu- og þyrluflug auðkýfinga og auðmanna. Á tímum baráttu gegn hamfarahlýnun er ólíðandi að yfirvöld greiði fyrir og ýti jafnvel undir notkun slíkra farartækja með því að finna þeim stað í hjarta borgarinnar. Það þarf að senda skýr skilaboð um að Reykjavíkurborg ætli sér að verða kolefnishlutlaus fyrir árið 2040 og fylgja því síðan fast á eftir með aðgerðum sem ná settum markmiðum,“ segir Stefán um málið.
Nána er fjallað um málið á vef Fréttablaðsins.