Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í málfræði segir að athugasemd sem hann setti við færslu Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingunnar, hafi verið falin fyrir almenningi og gerð einungis honum og vinum hans á Facebook sýnileg.
Hann telur það líklega gert þar sem athugasemd hans gagnrýndi orðræðu Kristrúnar í hádegisfréttum útvarpsins.
„Ég skrifaði hér fyrr í dag færslu út af orðum formanns Samfylkingarinnar í hádegisfréttum útvarpsins. Formaðurinn birti svo á síðu sinni færslu sem var efnislega samhljóða því sem hún sagði í útvarpinu. Við þá færslu skrifaði ég eftirfarandi athugasemd:
"Þá þarf að fordæma augljós mannréttindabrot skýrt og ákveðið í stað froðusnakks eins og í hádegisfréttunum."
Eiríkur segir að stuttu eftir að hann birti athugasemd sína hafi hann fengið tilkynningu um það hún væri einungis sýnileg honum og hans vinum á Facebook og þannig hefði birting hennar verið takmörkuð.
„Nú komst ég að að formaðurinn hefði falið þessa athugasemd mína. Það þýðir að þeir einu sem sjá hana eru ég (og veit þess vegna ekki að hún hefur verið falin, nema ég komist að því fyrir algera tilviljun), og Facebook vinir mínir, en aðrir sjá hana ekki,“ sagði Eiríkur í færslu sinni.
Þetta telur Eiríkur með öllu ótækt þar sem athugasemd hans væri eðlileg í ljósi þess „froðusnakks“ sem Kristrún hefði viðhaft í útvarpsfréttum.
„Formaður sem ekki þolir athugasemdir af þessu tagi er ekki minn formaður og flokkurinn ekki minn flokkur,“ segir Eiríkur um málið.