Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi Viðreisnar, er ekki sátt við orð seðlabankastjóra sem viðraði enn á ný hugmyndir sínar um skipulag í Reykjavík í hádegisfréttum á RÚV í dag. Þar talaði hann um mikilvægi þess að brjóta nýtt land í stað þess að huga að fjölda íbúða í byggingu og áhrif þess á fasteignamarkaðinn.
Þórdís Lóa bendir þó á að meirihlutinn í Reykjavík hafi á síðasta ári stuðlað að byggingu 1.174 íbúða í Reykjavík. Hún segir að aðeins á árinu 2018 hafi bygging á fleiri íbúðum hafist á einu ári.
„Við höfum verið að byggja upp nýtt Vogahverfi og Hlíðarhverfi. Við höfum séð uppbyggingu á Kirkjusandi, í Úlfarsárdal og í Gufunesi og erum að undirbúa uppbyggingu Skerjafjarðar. Á síðasta borgarráðsfundi samþykktum við að auglýsa tillögu á deiliskipulagi fyrir Elliðaárvog/Ártúnshöfða. Á því svæði öll munu rísa allt að 8.000 íbúðir og verður hverfið með álíka íbúafjölda og Grafarvogur,“ segir Þórdís Lóa.
Hún segir að núna eigi sér stað ein mesta íbúðauppbygging sem hafi sést hefur í Reykjavík, án þess að fara þá leið að brjóta alltaf nýtt land.
Hún segir það rétt hjá seðlabankastjóra að landrými á Íslandi er nægt, en telur það óskynsamlegt og kostnaðarsamt fyrir alla að fara þá leið að stækka alltaf landrýmið undir byggð.
„…í stað þess að fara leið skynsamlegrar þéttingar borgarinnar,“ segir hún að lokum.