Segir Hildi og Oddnýju „fórnarlömb“ Nadine Guðrúnar

Halla Rut Bjarnadóttir segir Hildi Lilliendahl og Oddnýju Arnarsdóttur vera fórnarlömb fréttakonunnar Nadine Guðrúnar Yaghi.

Halla Rut minnist þess að Nadine Guðrún Yaghi hafi fjallað um mál „grátandi Rúmenanna“ vitandi að „allt væri lygi.“ Halla Rut, sem er eigandi starfsmannaleigunnar Menn í vinnu, gefur lítið fyrir ummæli verkamannanna sem fóru í fjölmiðla að ræða um aðstæður í ólöglegu íbúðarhúsnæði í Hjallabrekku og meinta nauðungarvinnu hjá starfsmannaleigunni.

Hún skrifar um fjölmiðlakonuna í athugasemd við frétt um Hlíðarmálið svokallaða um Landsrétt sem dæmdi Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni í vil vegna ummæla sem Hildur Lilliendahl Viggósdóttir og Oddný Arnarsdóttir létu falla um Hlíðarmálið eftir umfjallanir Stöðvar 2, Vísis, Bylgjunnar og Fréttablaðsins um málið. Nadine Guðrún Yaghi var ein þeirra sem fjallaði ítarlega um málið og var kærð fyrir umfjöllunina af tveimur mönnum sem sakaðir voru um kynferðisbrot, en þeir voru aldrei nafngreindir í fréttunum.

Mennirnir voru hins vegar ekki dæmdir í gæsluvarðhald og af þeirri ástæðu reis upp mikil mótmælaalda og skipulögðu þá Oddný og Hildur mótmæli fyrir utan lögreglustöðina á Hlemmi. Rannsókn á hinum meintu brotum leiddi ekki til ákæru og felldi ríkissaksóknari það niður í júní 2016.

Héraðsdóm­ur Reykja­vík­ur dæmdi blaðamennina til að að greiða tveim­ur karl­mönn­um miska­bæt­ur vegna um­fjöll­un­ar í miðlum 365 og dæmdi héraðsdóm­ur nokk­ur um­mæli sem birt­ust m.a. í Frétta­blaðinu dauð og ómerk. Þar á meðal voru um­mæli um að íbúð í Hlíðunum væri út­bú­in til nauðgana. Nadine Guðrún Yag­hi var dæmd til að greiða hæstu bæt­urn­a. eða 700 þúsund krón­ur hvorum manni. Hæstiréttur staðfesti síðar dóminn.

Í athugasemd Höllu Rutar segir hún Hildi Lilliendahl og Oddnýju hafa látið ummælin falla því þau trúðu fréttamanninum. Þær séu að hennar mati einnig „fórnarlömb“ Nadine Guðrúnar.

„Nadine Guðrún Yaghi kom þessu af stað og var gert að borga mönnunum bætur á sínum tíma. En það stoppaði hana ekki. Því það var líka hún sem byrjaði málið með grátandi Rúmenana vitandi þá að allt var lygi. En þessir fréttamenn sem vaða áfram, leggjandi líf fólks og fyrirtækja, í rúst, þurfa aldrei gjalda fyrir það. Halda bara áfram í leit af næsta fórnarlambi fyrir eigin athygli í einn dag. Þessar konur trúðu blaðamanninum og var brugðið og þess vegna brugðust þær við. Enda eigum við að geta treyst því að það sé ekki verið að búa til ljótar sögur til að sjokkera okkur. Þær eru því að mínu áliti einnig fórnarlömb fréttakonunnar sem kom þessu af stað,“ skrifar Halla Rut.

Mynd/Skjáskot

Halla Rut hefur áður gagnrýnt Nadine Guðrún, meðal annars í aðalmeðferð við mál fjögurra Rúmena gegn Mönnum í vinnu og Eldum rétt vegna vangoldinna launa.

„Svo var Nadine Guðrún Yaghi bara mætt þarna ásamt Grönvold og fullt af öðru fólki. Þarna var búið að kalla á lögregluna, heilbrigðiseftirlitið. Ég sendi öllu þessu fólki, Bæði Nadine og fréttastofu og Eflingu að ég hefði greitt þessu fólki. Ég sendi örugglega á svona 50 manns og þau vissu öll að ég hefði greitt þessu fólki og vissu að þetta væri lygi. Þau voru bara stanslaust að ljúga uppá mig, vildu ekki fá gögnin. Það var bara Vinnumálastofnun sem fann ekki þúsundkall sem var að. Þeir hefðu í raun átt að borga 65 þúsund í leigu en borguðu bara 30 þúsund,“ sagði Halla Rut í aðalmeðferð í febrúar, en héraðsdómur vísaði frá dómi kröfum þeirra.

Vert er að nefna að Vinnu­mála­stofn­un lagði 2,5 millj­ón króna stjórn­valds­sekt á fyr­ir­tækið Menn í vinnu vegna ósam­ræm­is milli skráðra ein­stak­linga hjá stofn­unni og þeirra fyr­ir­tækið hef­ur greitt af hjá rík­is­skatt­stjóra árið 2019.

Fleiri fréttir