Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og Davíð Oddson, ritstjóri Morgunblaðsins, eiga í orðhnippingum þessa dagana í gegnum Facebook og Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins.
Rganar Þór hótaði annarri búsáhaldabyltingu ef sömu mistök sem gerð voru eftir bankahrunið verði endurtekin. Davíð gefur lítið fyrir búsáhaldabyltinguna í bréfi sínu og gagnrýnir Ragnar Þór.
„Það var skrítið að sjá vitnað í verkalýðsleiðtoga sem taldi nú þarfast að blása til nýrrar „búsáhaldabyltingar“ í tilefni af efnahagslegum afleiðingum kórónuveirunnar! Þeir eru enn til sem vilja vefja þá meintu „byltingu“ í rósrauðan skrúða en þó þolir mjög fátt af því sem gerðist þá minnstu skoðun. Hana mætti fremur kalla byltinguna sem aldrei varð af því að hún snerist aðallega um sjálfa sig en ekki framhaldið,“ skrifar Davíð.
Sjúklegt viðhorf gagnvart venjulegu fólki
Ragnar Þór svarar Davíð fullum hálsi í færslu sem hann birti í dag á Facebook og gagnrýnir ritstjórann fyrir að kalla fólkið lið, skríl, sora og brúðuleikara.
„Þetta er sjúklegt viðhorf gagnvart venjulegu fólki sem fékk nóg af áralangri rótfastri spillingu fjórflokksins sem raungerðist svo í allsherjar hruni.“
Hann segir fyrri björgunarpakka eftir hrun hafa verið eftir hagsmunum auðvaldsins á meðan fólkinu og heimilum var blætt úr út.
„Ég get tekið undir með vini mínum Davíð að lítið hefur áorkast síðan þá því spillingin og dekrið við auðvaldið og önnur hagsmunaöfl hefur sjaldan verið meiri og sýnilegri.“
„Ég finn til með vini mínum Davíð“
Ragnar segir að hann hafi sem ungur maður trúað því að Davíð stæði með fólkinu og væri sanngjarn gagnvart vinnandi stéttum. Hann rifjar upp sögu frá því að hann hitti Davíð árið 1992 í Þórsmörk
„Þar var hann að sækja sér stuðning hjá sama liði, skríl og sora sem honum er svo tíðrætt um. Þarna voru líka verðandi popúlistar og óharðnaðir lýðskrumarar, brúðuleikarar og annað hyski sem síðar veittu honum það fylgi sem þurfti til að stjórna landinu lengst allra stjórnmálamanna.“
Ragnar birtir með færslunni mynd af þeim „vinunum“ í þetta eina skipti sem þeir hittust.
„Ég finn til með vini mínum Davíð því ég finn til með fólki sem talar svona til þjóðarinnar og hefur svo grimmilegt viðhorf til fólksins sem er hin raunverulega stoð í þessu samfélagi.
Fólkið sem þú vonar að verði veirunni að bráð ef því detti sú fásinna í hug að koma saman á Austurvelli aftur.
Þjóðin hefur verið rænd fyrir opnum tjöldum nægilega lengi til að hvert mannsbarn sjái í gegnum hverja hagsmuni er verið að gæta með skrifum Reykjavíkurbréfsins, hagsmunaklíku sem væri ekki til án vinnandi handa eða sama skríls og þú nefnir.“
Ragnar bendir Davíð á að hvorki völd hans sé gamalgróin ítök nái lengur yfir verkalýðshreyfinguna:
„Við erum að rísa upp. Við vitum hvar hið raunverulega vald liggur og það er hjá okkur skrílnum og soranum. Það hlýtur að hræða menn sem eru að missa tökin. Tökin á því hvað má segja og hvað ekki og hverjir eru inni og hverjir eru úti.“
Hér fyrir neðan má sjá færslu Ragnars í heild sinni.