Fyrrverandi borgarstjóri, Ólafur F. Magnússon, segir að núverandi borgarstjóri sé farinn að minna meira á rómverskan harðstjóra en lýðræðislega kjörinn borgarstjóra.
„Einna helst Caligula, eða Dagur C. Eggertsson !“ segir hann í athugasemd við færslu Vigdísar Hauksdóttur, borgarstjórnarfulltrúa Miðflokksins, á Facebook.
Vigdís svarar þar segir Degi sem sagði í dag að hún hefði haft rangt fyrir sér um kostnað við breytingar á Óðinstorgi í miðborg Reykjavíkur. Þær hafi kostað 60 milljónir en ekki hálfan milljarð eins og hún hélt fram.
Vigdís segir Dag segja ósatt og ekki það í fyrsta sinn og birtir með færslunni gagnbókun sína í málinu.
„Hér er dylgjað út í eitt að venju. Eftir að ég settist í borgarstjórn var talað um „Þingholt, torgin þrjú“ þar sem um 300 milljónum átti að vera varið til þess að gera upp Baldurstorg, Freyjutorg, og Óðinstorg. Þegar verkefnið fór af stað og var kynnt fyrir kjörnum fulltrúum og Reykvíkingum öllum var öll áhersla lögð Óðinstorg og Týsgötu að hluta,“ segir Vigdís og segir alla hafa verið blekkta. Hún vísar svo til kynningar á verkefninu.
Borgarstjóri segir ósatt og það ekki í fyrsta sinn Hér er gagnbókun mín í málinu - og allir geta lesið...
Posted by Vigdís Hauksdóttir on Thursday, 10 December 2020