Segir að vandamálið í íþróttahreyfingunni sé rótgróin kvenfyrirlitning: „Ekki trans konur sem vilja fá að stunda sína íþrótt í friði“

Haf­dís Erla Haf­steins­dóttir, doktors­nemi í sagn­fræði og fyrr­verandi lands­liðs­kona í sundi, segir vanda í­þrótta­hreyfingarinnar liggja í kerfis­bundinni og rót­gróinni kven­fyrir­litningu í pistli sem hún birtir í dag á Face­book síðu sinni. Fréttablaðið greindi frá.

Hún segir mál eins og það sem upp kom hjá Breiða­blik í gær það sem þurfi að beina spjótum sínum að. „Ekki trans konur sem vilja fá að stunda sína í­þrótt í friði,“ skrifar Haf­dís og vísar til ný­legrar á­kvörðunar Sund­sam­bands Ís­lands um að kjósa með því að banna trans konum að keppa á af­reks­stigi í kvenna­flokki.

Í gær greindi Frétta­blaðið fá því að þjálfarar Breiða­bliks hefðu mælst til þess við for­eldra að stúlkur í 4. flokki myndu ekki sækja partý á vegum ReyCup. Var á­stæðan sem rekin var aldurs­stig, sitt­hvorir menningar­heimar og sögu­sagnir af fyrri við­burðum.

Haf­dís lætur þess getið að mikil um­ræða hafi verið um að standa vörð um í­þróttir kvenna upp á síð­kastið og setur það í sam­hengi við Breiða­bliks­málið.

„Ég á von á því að þessir á­gætu í­þrótta­for­kólfar sem hefur verið ó svo annt um öryggi kvenna í í­þróttum stígi núna fram og for­dæmi slíkar að­gerðir og krefjist þess í kjöl­farið að öll lið taki af festu á slíkum málum og láti á­byrgðina hvíla á þar sem hún á heima. Hjá ger­endum. Hjá þeim þjálfurum og liðum sem að líða og jafn­vel upp­hefja of­beldis­menningu og kven­fyrir­litningu. Því að ná­kvæm­lega þarna liggur vandi í­þrótta­hreyfingarinnar. Í kerfis­bundinni og rót­gróinni kven­fyrir­litningu.“

Haf­dís segir skila­boðin alltaf hafa verið þau sömu. „Þetta skapar frjóan jarð­veg fyrir kerfis­bundna mis­munun sem í sinni ýktustu mynd verður að með­virkri of­beldis­menningu eins og ný­leg dæmi úr ís­lenskum í­þrótta­heimi sýna. Hug­myndinn um karlinn sem „svindlar“ í í­þróttum og keppir sem kona er rót­gróið af­sprengi þessarar hugsunar og blindar mörgum innan í­þrótta­hreyfingarinnar sýn þegar kemur að því að ræða mál­efni trans kvenna af sann­girni. Sé í­þrótta­hreyfingunni al­vara með að standa vörð um sann­girni í kvenna­í­þróttum, þá er mál eins og það sem kom upp í Breiða­blik það sem þarf að beina sjónum sínum að. Ekki trans konur sem vilja fá að stunda sína í­þrótt í friði.“

Hægt er að lesa greinina í heild sinni hér.

Fleiri fréttir