Sigurður segir að pistlahöfundur Viðskiptablaðsins hræðist sterkar konur: „Nú rís jafnara og réttlátara samfélag“

Sigurður Péturs­son sagn­fræðingur lýsir Við­skipta­blaðinu sem sér­trúa­riti sem hræðist sterkar konur, en ný­verið birtist þar skoðunar­pistillinn „Ó­tíma­bært sáð­lát“, sem fjallaði um að stuðnings­menn Sam­fylkingarinnar ættu ekki að fagna góðu gengi alveg strax. Þetta segir hann í ný­legri skoðunar­grein í Frétta­blaðinu.

„Við­skipta­blaðið er oft eins og sér­trúar­rit. Þar er hægri­stefnan boðuð með vísan í helstu páfa safnaðarins í fréttum, við­tölum og pistlum, sumum undir dul­nefnum úr nor­rænni goða­fræði,“ segir Sigurður.

Hann gagn­rýnir pistla­höfundinn sem kennir sig við Týr, stríðs­guð nor­rænnar goða­fræði og segir að honum sé upp­siga við konur. Sér­stak­lega sterkar konur, líkt og Krist­rúnu Frosta­dóttur, for­mann Sam­fylkingarinnar og Sól­veig Önnu Jóns­dóttur, formanns Eflingar.

„Síðustu vikur hafa tvær konur ógnað sér­trúar­söfnuði Týs. Önnur er for­maður öflugasta stéttar­fé­lags í landinu og berst fyrir bættum kjörum lág­launa­kvenna og erfiðis­stétta. Hin er ný­kjörinn for­maður jafnaðar­flokks Ís­lands. Báðar hafa talað ein­arð­lega fyrir bættum lífs­kjörum al­mennings. Báðar hafa því komið við kauninn á hinum her­skáa Tý, sem telur hlut­verk sitt að vernda og verja vé auð­stéttarinnar og for­réttinda­hópanna,“ segir Sigurður.

Sigurður segir að Týr hafi í pistlinum „Ó­tíma­bært sáð­lát“ kvartað sáran yfir að fjöl­miðlar hafi gert meira en góðu hóf gegnir úr niður­stöðu síðustu skoðana­kannana, þar sem Sam­fylkingin mælist jafn­stór og Sjálf­stæðis­flokkurinn.

„Reyndar er það stór­frétt, því slíkt hefur ekki gerst í mörg ár, jafn­vel þó að fylgi Sjálf­stæðis­flokksins hafi aldrei verið minna en síðasta ára­tuginn. En af því að Týr er af goða­kyni, þá sá hann þetta fyrir og segir „að fylgis­aukningin sé varla ó­vænt.“,“ segir Sigurður.

„Kannski skynjar hann að ríkis­stjórnar­flokkarnir séu að upp­skera eins og þeir hafa sáð. Að dal­andi gengi stafi af ótal klúður­málum, ó­mann­úð­legri stefnu gagn­vart stórum sam­fé­lags­hópum, lög­brotum við banka­sölu, yfir­gangi við ráðningar og rang­látri skatta­stefnu,“ segir Sigurður.

Að sögn Sigurðar er Krist­rún Frosta­dóttir eini stjórn­mála­maðurinn í seinni tíð sem hefur kaf­fært nú­verandi fjár­mála­ráð­herra í rökum og skyn­semi.

„Hún hefur bent á lausnir jafnaðar­stefnunnar þannig að allir skilja. Þetta hræðir sér­trúar­söfnuð Týs – ekki síður en ein­örð bar­átta Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, formanns Eflingar. Eina huggun Týs er að það er langt í næstu kosningar og því kannski tími til að brugga ný ráð, spinna nýjar sögur og setja upp ný leik­tjöld til að blekkja lýðinn,“ segir Sigurður.

„Þó er allt eins víst að sú alda sem nú rís fyrir jafnara og rétt­látara sam­fé­lagi, skoli breytingum á land á næstu misserum – og taki í út­soginu með sér fúl­eggin sem Týr og sam­herjar hans dreifa viku­lega í safnaðar­ritinu,“ segir Sigurður að lokum.

Trausti Haf­liða­son, rit­stjóri Við­skipta­blaðsins hefur beðist af­sökunar á fyrir­sögninni og var henni breytt fyrir vef­út­gáfu blaðsins.

„Það voru mis­tök að birta þessa fyrir­sögn svona. Sam­líkingin var bara lé­leg. Sam­líkingin var í tengslum við ó­tíma­bæran fögnuð kjós­enda Sam­fylkingarinnar á gengi flokksins í skoðana­könnunum. Þá notar þessi pistla­höfundur þessa sam­líkingu sem var ó­smekk­leg. Það voru bara mis­tök að þetta hafi farið í gegn,“ sagði Trausti við Vísi.

Fleiri fréttir