Sara María Júlíusdóttir frumkvöðull segir að hugvíkkandi efni geti hjálpað hverjum og einum einstakling. Hún vonast til þess að Ísland geti verið leiðandi á heimsvísu í framþróun hugvíkkandi efna. Sara stóð fyrir ráðstefnu um hugvíkkandi efni í Hörpunni um helgina. Þetta sagði Sara í Fréttavaktinni í gær.
„Hugvíkkandi efni eru bæði náttúruleg og kemísk efni, en það eru efni sem hjálpa okkur að komast kannski aðeins úr litla hausnum okkar, víkka hugann og hjálpar okkur að sjá betur og finna fyrir okkur til dæmis,“ segir Sara.
Að hennar sögn geta slík efni gagnast öllum, en það sé auðvitað einstaklingsbundið. „Mannkynið hefur notað þessi efni í árþúsundi til að bæta líf sitt,“ segir Sara.
„Ég myndi segja að hugvíkkandi efni hjálpi hverjum og einum einstakling að finna rótina að því hvað er að í hvers lífi. Það getur verið líkamlegt, andlegt, tilfinningalegt. Það er allur gangur á því,“ segir Sara.
Sara þekkir notkun hugvíkkandi efna á eigin skinni og að hennar sögn breyttu þau öllu fyrir henni.
„Þetta breytti algjörlega lífinu fyrir mér, þá innra lífinu mínu. Hvernig mér leið með sjálfa mig. Hversu örugg ég var í þessu lífi, í þessum heimi, með mig. Að sjá hver ég er og hvað ég er. Meira jafnvægi, meiri ró, friður og sjálfsást. Sjálfsást er það sem hver og einn fær með notkun hugvíkkandi efna,“ segir Sara.
Aðspurð hvort þessi efni henti öllum, þá svarar Sara að það fari eftir hverjum og einum. Fólk þarf að vera skynsamt og fara varlega.
„Þetta er svo spennandi og þá vilja allir þessa töfralausn því þetta gerir svo mikið. En þetta getur líka gert of mikið ef þú ert ekki með rétta utanumhaldið. Eins og þú getur ekki farið á spítala og haft engar hjúkrunarkonur og fólk að hugsa um þig. Við þurfum að vera með opinn huga, en líka að vera skynsöm og fara varlega og tala saman og fræða okkur,“ segir Sara.
Hún vonast eftir að Ísland verði leiðandi afl í framþróun hugvíkkandi efna í heiminum. Víða um heim er verið að lögleiða hugvíkkandi efni, til að mynda í Bandaríkjunum.
„Þetta er að ganga hægt og rólega. Þetta er í framþróun, en það væri spennandi ef við Íslendingar myndum taka smá forystu og vera leiðandi. Auðvitað er það spennandi fyrir fólk eins og mig. Ég veit að við getum gert það og gert það vel. Það finnst mér,“ segir Sara.
Hægt er að lesa meira hér.