Séð fólk skella hurðum og beita hótunum á Al­þingi

Björn Leví Gunnars­son, þing­maður Pírata, kallar eftir því í pistli í Morgun­blaðinu í dagað ný­liðun á þingi í haust verði nýtt til þess að af­nema of­beldis­menningu sem hann segir líðast á þingi í dag.

„Ef fólki tekst ekki að ná sínu fram með rökum þá beitir það of­beldi. Hér er alls ekki átt við líkam­legt of­beldi, en það hefur alveg jaðrað við það. Ég hef séð fólk öskra hvað á annað, skella hurðum, beita hótunum og þess háttar. Hér er átt við stofnana­legt of­beldi,“ segir Björn Leví í greininni.

Hann segir frá því hvernig nefndar­starfi er háttað og hvernig það fer eftir með­limum nefndarinnar hvernig það gengur.

„Ég heyri svipaða sögu úr öðrum nefndum, það skiptir máli hver stýrir fundum og hverjir nefndar­menn eru. Það skiptir máli hvernig starfið fer fram og hvaða árangri við náum saman. Þetta ætti ekki að koma neinum á ó­vart auð­vitað. Rétt fólk á réttum stað skilar réttum árangri. Það skiptir því miklu máli að gott fólk veljist til starfa á þingi, fólk sem velur ekki að beita of­beldi til þess að ná árangri,“ segir Björn Leví.

Hann segir þó vandann vera þann að menningin á þinginu ýti undir þessar of­beldis-að­ferðir.

„Leikurinn er settur upp þannig að of­beldis­að­ferðir verða sjálf­krafa fyrir valinu og það þarf að hafa fyrir því að ná árangri á annan hátt. Þetta eru vinnu­brögð sem mér sýnist flestir flokkar vera búnir að sætta sig við. Þau kunna á þetta vinnu­lag og finnst þægi­legt að falla bara í sama far og venju­lega. Þar er vandinn, í hefðum gömlu flokkanna sem eru með Stokk­hólms­heil­kenni gagn­vart gömlu skot­grafa­pólitíkinni,“ segir Björn.

Hann segir alla vera að reyna að gera sitt besta en að það sé mis­jafnt hvað fólk geri til að ná því.

„Það sem skemmir fyrir, að mínu mati, er hvernig hefðir hafa mótast á Al­þingi, því nýtt fólk sem kemur inn í starfið fellur mjög auð­veld­lega í sama gamla farið. Þess vegna sést svo lítill munur á starfi þingsins þó það komi fullt af nýju fólki, því þegar þau detta í skot­grafirnar byrjar of­beldið, ó­af­vitandi jafn­vel,“ segir Björn sem kallar eftir því að það verði gerð til­raun til að breyta þessu á næsta þingi, því það líti út fyrir að nokkur ný­liðun geti átt sér stað.

Greinina er hægt að lesa í Morgun­blaðinu í dag.

Fleiri fréttir