Indriði Aðalsteinsson, bóndi á Skjaldfönn og skáld, kastar kveðju til Samherja í tilefni þess að börn aðaleigenda félagsins fái framseld hlutabréf foreldra sinna.
Vísan sem Indriði samdi birtist á vef bb í dag og er hún sungin við lag Jórunnar Viðar Það á að gefa börnum brauð.
Auðlindaþjófar ei verjast í vök,
vondir og gráðugir herða sín tök.
Samherjakrakkarnir forljótu fá
fimmhundruð milljarða pöbbunum hjá.