Samfylkingin gaf Kristjáni glaðning: „Ég þakkaði fyrir mig og fór rakleiðis með hana í ruslið“

Spark­s­pekingurinn Kristján Óli Sigurðs­son greindi frá því á Twitter að það hafi samfylkingarfólk komið heim til hans og boðið honum rauða rós frá flokknum. Nú er stutt í kosningar og eru flokkarnir að reyna ná til kjós­enda með hinum ýmsu leiðum.

Kristján segir að hann hafi tekið við rósinni og þakkað fyrir sig. Hann virðist samt sem áður ekki hafa verið hrifinn af þessum glaðning, en hann henti rósinni beint í ruslið.

„Sam­fylkingar­fólk í Kópa­vogi bankaði upp á hjá mér áðan og gaf mér rós. Ég þakkaði fyrir mig og fór rak­leiðis með hana í ruslið.“

Jón Haukur Bald­vins­son svarar Kristjáni á Twitter með svipaða sögu, en það bankaði einnig starfs­maður Sam­fylkingarinnar upp á hjá honum og bauð honum rós. Hann deildi skemmti­legu mynd­bandi af at­vikinu, en hann af­þakkaði rósina pent og benti konunni að setja hana bara í ruslið.

Fleiri fréttir