Sakar RÚV um að hafa meintan geranda á skjám lands­manna yfir páskana

Á Vísi í dag var í dag birtur skoðanapistill frá sál­fræðingnum Gabríelu B. Ernu­dóttur, sem hún titlar „Meintur gerandi á dag­skrá RÚV um páskana“.

Í pistlinum talar hún um vitundar­vakninguna sem hefur átt sér stað í sam­fé­laginu á síðustu árum, þar sem um­burðar­lyndi fyrir­tækja og fólks fyrir of­beldis­mönnum er ekki neitt.

Segir hún meðal annars: „ Hafa meintir ger­endur hver af öðrum sagt sig úr stjórnum fyrir­tækja og sam­taka, og stigið til hliðar úr á­berandi stöðum í sam­fé­laginu og úr sviðs­ljósinu. Fólk er flest sam­mála um að sam­fé­lagið sé að breytast hratt þessa dagana og minni þolin­mæði og um­burðar­lyndi sé gagn­vart hegðun ger­enda.“

Gabríelu finnst þá merki­legt hvað RÚV, sem er sjón­varp allra lands­manna skuli geta boðið þol­endum upp á að meintur gerandi sé alla sunnu­daga í sjón­varpinu og aug­lýstur allan daginn og velti­r hún fyrir sér hvað þol­endur eiga að þurfa að þola frá ríkis­reknum miðli. Maðurinn sem um ræðir hefur verið á­sakaður um kynferðis­brot gegn eigin barni.

„Er RÚV með þessu að sam­þykkja það að skömminni sé haldið að þolanda, barninu og þar með þol­endum al­mennt á meðan meintur gerandi skemmtir þjóðinni? Spyr ég því hvers vegna RÚV tekur ekki af­stöðu gegn of­beldi eins og mikill hluti sam­fé­lagsins kýs sjálft al­mennt að gera þessa dagana?“

Pistilinn á Vísi má sjá í heild hér.

Fleiri fréttir