Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur ekki farið fögrum orðum um Agnieszka Ewa Ziólkowska, varaformann Eflingar og Ólöfu Helgu Adolfsdóttur ritara Eflingar, síðustu daga.
Hún hefur nýtt tækifærið á samfélagsmiðlum til að gera lítið úr þeim báðum persónulega og gert lítið úr þeirra vitsmunum.
„Aumingja þessar konur. Það eru hræðileg örlög að hafa engan siðferðisáttavita, enga skynsemi og stéttarvitund,“ sagði Sólveig í gær. Ummæli Sólveigar hafa farið öfugt ofan í marga og þá sérstaklega hvernig hún talar niður til þeirra.
Sigurður Ingi Ricardo, Hafnfirskur félagsfræðingur og jafnaðarmaður ættaður frá Filippseyjum og Vestfjörðum, bendir á að þetta sé þekkt að tala fólk af erlendu bergi brotnu niður og segja það sé vitlaust.
„Ah íslensk hvít kona í samfélaginu og verkalýðsforingi að segja um konu með erlendan bakgrunn að hafi enga skynsemi og enga stéttarvitund,“ skrifar Sigurður.
Nichole Leigh Mosty, fyrrum þingmaður Bjartrar framtíðar, tekur undir með Sigurði og segir: „Stéttarvitund… ég er til að deila með SAJ aðeins um stéttarvitund erlendra kvenna. Þó að ég hef náð eitthvað fram ef þið bara hafði hugmynd af hvernig er komið fram við okkur. Mér svíðir að lesa þetta. Er varaformaður ekki tekin sem gild hjá Eflingu? Er hún virt af formanni?“ skrifar Nichole.
„Í hreinskilni sagt finnst mér SAJ vera eineltisseggur,“ segir Halldór Jörgensson. Nichole tekur undir með honum.
Phoenix Jessica Ramos fyrrum starfsmaður Eflingar segist vita að Sólveig beri enga virðingu fyri Agnieszku. Hún segir Sólveigu hafa viljað fá klapp á bakið fyrir að vera með erlenda konu í leiðtogastarfi en um leið og sú kona hafi opnað munninn og verið með sínar eigin skoðanir þá var það óásættanlegt.
Stéttvitund… ég er til að deila með SAJ aðeins um stéttavitund erlendra kvenna. Þó að ég hef náð eitthvað fram ef þið bara hafði hugmynd af hvernig er komið fram við okkur.
— Nichole Leigh Mosty 🕊️💙 (@nicholeleigh19) February 23, 2023
Mér svíðir að lesa þessa. Er varaformaður ekki tekin sem gild hjá Eflingu? Er hún virt af formanni? 😡😡 https://t.co/QPNc5jZ9tS
Pheonix if you only knew half of what I have gone through and continue to experience. I have accepted that I am often a token. I really thought Efling would do it right that she had earned respect. I was so proud of her (Aga) now I am angry for her with her! She deserves better!
— Nichole Leigh Mosty 🕊️💙 (@nicholeleigh19) February 23, 2023
Hvað? Það var ekki ég sem tók þessa mynd pic.twitter.com/ssPARvOjCQ
— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) February 23, 2023