Saga er Idol-stjarna Íslands: „Svo bara fór ég ekkert heim“

Saga Matt­hildur Árna­dóttir fangaði hug og hjörtu ís­lensku þjóðarinnar í kvöld, en rétt í þessu var hún krýnd sigur­vegari í úr­slita­keppni Idol stjörnu­leitar Stöðvar 2.

Saga Matt­hildur er 24 ára ættuð frá Bolungar­vík en býr í Garða­bænum. Hún stundar nám við Há­skóla Ís­lands í tóm­stunda- og fé­lags­fræði og sam­hliða því starfar hún í fé­lags­mið­stöð.

Saga Matt­hildur mætti með gítarinn sinn í fyrstu á­heyrnar­prufuna, en þar flutti hún sína eigin út­færslu á lagi hljóm­sveitarinnar Blink 182, I miss you. Herra Hnetu­smjör sagðist fullur að­dáunar eftir flutning Sögu Matt­hildar, hann sæi fyrir sér að hún gæti selt upp í sæti í Gamla Bíó á hálf­tíma.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Saga Matt­hildur áður stigið á svið og keppt í söng, en árið 2015 keppti hún í Söngva­keppni fram­halds­skólanna fyrir hönd Fjöl­brauta­skólans í Garða­bæ. Saga Matt­hildur hafnaði þar í þriðja sæti og vann síma­kosninguna.

Í sam­tali við Frétta­blaðið fyrir úr­slita­kvöldið sagði Saga Matt­hildur að hún hafi ekki búist við að komast alla leið í úr­slitin.

„Ég get nú ekki sagt það og svona í byrjun hélt ég að maður kæmist kannski á­fram svona einu sinni, tvisvar og ætlaði bara að sjá til hvað myndi gerast. Og svo bara fór ég ekkert heim,“ sagði Saga Matt­hildur.

Hægt er að lesa meira hér.

Fleiri fréttir