Það hafa yfir 400 manns skrifað undir undirskriftalista á vefsíðunni change.org, þar sem krafist er að Erla Bolladóttir verði sýknuð vegna framgöngu dóms-og lögregluyfirvalda í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Stofnendur undirskriftarlistans stefna á 25 þúsund undirskriftir og munu fara með málið til Mannréttindadómstóls Evrópu ef ekki verður gengist við kröfum þeirra.
Erla er sú eina af þeim sex einstaklingum sem hlutu dóma í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum árið 1980 sem ekki hefur fengið mál sitt endurupptekið. Þann 4. janúar síðastliðinn var felldur úr gildi dómur Héraðsdóms Reykjavíkur og fer því mál Erlu til endurupptökudóms til nýrrar meðferðar og úrskurðar um hvort skilyrði eru fyrir því að endurupptaka hennar þátt í Geirfinnsmálinu.
Á undirskriftalistanum á change.org segir að Erla var dæmd fyrir meinsæri á sínum tíma en löngu er ljóst að vitnisburður Erlu var þvingaður fram.
„Í dómi héraðsdóms þann 4. janúar síðastliðinn segir að ekki liggi ljóst fyrir að sakfelling Erlu á sínum tíma styðjist við næg gögn sem ekki séu hafin yfir allan vafa,“ segir meðal annars.
Þá kemur fram að Erla er enn neydd til að berjast fyrir réttlæti í máli sínu, en hinir fimm sakborningarnir fengu mál sín endurupptekin og voru í kjölfarið sýknaðir. Stofnendur listans segja að málið sé verulega vandræðalegt fyrir dómsmálayfirvöld þar sem ljóst er að sakborningar komu hvergi nærri hvarfi Guðmundar og Geirfinns,
„Þó áttu þeir að hafa tekið saman ráð sín um að koma sökinni yfir á aðra fjóra saklausa menn en játuðu á sig sökina á sama tíma. Dómsmálayfirvöld hanga á því einu að þegar Erla skrifaði undir skýrslu sem vitni, þá var hún ekki gæsluvarðhaldi. ( þó svo hún hafi ekki gæsluvarðhaldi í gæsluvarðhaldi var hún engu að síður undirokuð einbeittum vilja þessara manna).“
Í undirskriftalistanum kemur einnig fram að Erla hafi setið saklaus í einangrun í 239 daga. Hún hafði verið nýbúinn að fæða sitt fyrsta barn, en var sett í einangrun án þess að vita hvar barnið væri niðurkomið.
Hægt er að lesa fréttina í heild sinni hér.