Rósa Björk: „Köld kosninga­tuska“ fjár­mála­ráð­herra

Rósa Björk Brynjólfs­dóttir, þing­kona Sam­fylkingarinnar, segir að fjár­mála­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, hafi kastað kaldri kosninga­tusku til heil­brigðis­starfs­fólks í gær þegar hann sagði í ­fréttum á RÚV að það væri „ó­á­sættan­legt að heil­brigðis­kerfið réði ekki við fjórðu bylgju far­aldursins, þrátt fyrir að flestir séu bólu­settir…að ein­staka einingar í kerfinu virðist ekki vinna nógu vel saman og að fram­leiðni hafi ekki aukist sam­hliða aukinni fjár­mögnun og betri mönnun.“

Rósa Björk segir að á­kall heil­brigðis­starfs­fólk undan­farna mánuði, og í raun ár, hafi ekki farið fram hjá neinum og að bæði heil­brigðis­starfs­fólk og for­stjóri Land­spítalans hafi svarað orðum hans.

„Mörg hundruð manns sem vinna baki brotnu við að sinna veikum og bjarga manns­lífum hefur í­trekað komið fram og bent á mjög al­var­lega stöðu og álag. Á­stand sem hefur þyngst gríðar­lega í Co­vid. Þó að heil­brigðis­starfs­fólk hafi lagt allt sitt í bar­áttuna og meira til.“

Rósa vitna í orð Elínar Tryggva­dóttur, hjúkrunar­fræðings á bráða­mót­töku, sem að segir Bjarna greini­lega ekki hafa verið að hlusta á á­kall heil­brigðis­starfs­fólk undan­farin ár.

„Þú talar um að ef einn vagn á lestinni sé með bilaðan hjóla­búnað geti hann dregið alla lestina niður á hraða. Þú ert senni­lega að gefa í skyn að Land­spítali sé bilaði vagninn en áttar þig ekki á því að það ert þú sem situr við stjórn í bilaða vagninum. Bilaði vagninn er eim­reiðin sem á að knýja lestina á­fram og ég vona að þú áttir þig á því fyrr en síðar,“ segir Elín.

Nánar má lesa um það á vef Frétta­blaðsins.

Fleiri fréttir