Ritstjóri Stundarinnar segir Líf hafa rangt fyrir sér um kjósendur flokksins

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Stundarinnar, segir að oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, Líf Magneudóttir, hafi rangt fyrir sér þegar hún segir að borgarbúar hafi hafnað hugmyndum flokksins um kvenfrelsi, umhverfisvernd og félagslegt réttlæti þegar þau kusu ekki flokkinn en þau hlutu aðeins fjögur prósenta atkvæða í borginni í sveitarstjórnarkosningum um helgina. Í kjölfarið tilkynnti Líf að hún ætlaði ekki að taka þátt í meirihlutasamstarfi, heldur að nýta kjörtímabilið til að vinna að þeirra málum.

Ingibjörg segir þessa nálgun ranga hjá Líf og að kjósendur flokksins hafi einfaldlega farið annað með atkvæðin sín. „Þeir fóru bara annað með þessi atkvæði. Líklega til Samfylkingar fyrir kvenfrelsi, Pírata fyrir umhverfisvernd og Sósíalista fyrir félagslegt réttlæti.“

Í færslunni fer Ingibjörg einnig yfir það sem hefur gerst undanfarið í landspólitík og hvernig það hefur haft áhrif á flokkinn en bendir einnig á það, sem vakti athygli um helgina, að fyrrverandi oddviti Vinstri grænna og femínistinn Sóley Tómasdóttir hvatti fólk til að kjósa Samfylkinguna í stað Vinstri grænna vegna þess að jafnréttisstefna þeirra væri sú trúverðugasta.

Fleiri fréttir