„Nú keppast óvitrir framleiðendur/seljendur óbótaefna hver um annan þveran við að auglýsa og selja gagnslaus efni allt frá klóri til C-vítamíns sem varnir við kórónaveirunum,“ segir Reynir Eyjólfsson, doktor í lyfjafræði.
Reynir skrifar grein um málið sem birtist í Fréttablaðinu í dag undir yfirskriftinni Prófessorar komnir í kuklið. Vísar hann meðal annars í viðtal sem birtist í Morgunblaðinu í mars síðastliðnum við prófessor í augnlækningum. Þar greindi hann frá því að hann og lyfjafræðiprófessor hefðu blandað saman blöndu úr lýsi og óbundnum fitusýrum í 2% þéttni.
„Þetta samsull segir hann að eigi að setja snarlega á markað sem vörn gegn kórónaveirusmiti með því að skola munninn og kokið með þessu 2 - 4 sinnum á dag. Smit um nef og augu nefnir hann ekki.“
Reynir segir að máli sínu til stuðnings hafi augnlæknirinn nefnt 30 ára gamlar athuganir sem áttu að sýna fram á veiruhemjandi áhrif blöndu úr 0,5% fitusýrum í lýsi í tilraunaglösum.
„Auðvitað segja svona tilraunir ekkert um virkni blöndunnar í fólki. Engar athuganir hafa verið gerðar á áhrifum blöndunnar á kórónaveirurnar og niðurstöður úr klínískum rannsóknum vantar alveg. Þess vegna er þetta bara ótínd snákaolía.“
Reynir segir að jafnvel þó umrædd snákaolía, sem hann nefnir, hefði einhver veiruhemjandi áhrif gæti notkun hennar valdið fölsku öryggi þar sem hættan á smiti um nef og augu er eftir sem áður galopin.
„Einnig er ólíklegt að blandan haldist stundinni lengur í munnholi og koki. Mér finnst það sorglegt að menn, sem kenna sig við vísindi og kenna lækna- og lyfjafræðinemum, skuli gera sig uppvísa að kukli á borð við þetta og ætla sér að notfæra sér það átakanlega ástand sem nú ríkir í þjóðfélaginu til að markaðssetja svona samsull til þess eins að græða á því.“