Reykjavíkurborg hefur áhyggjur af útivistarsvæðum sveitarfélaga ef frumvarp um breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu verður afgreitt af þinginu. Í frumvarpinu er lagt til að öskudreifing verði gefin frjáls og virða beri ósk hins látna um hvar og hvernig ösku er dreift.
„Er það álit flutningsmanna að sú opinbera íhlutun sé ónauðsynleg og engin ástæða til annars en að einstaklingar hafi meira frelsi um hvernig og hvort jarðneskar leifar þeirra séu varðveittar, grafnar eða þeim dreift. Með frumvarpi þessu er lagt til að dreifing jarðneskra leifa verði gefin frjáls. Áfram þurfi að búa um öskuna í þar til gerðum duftkerum eftir líkbrennslu. Aftur á móti verður gefið frjálst hvað gert verður við kerin.“
Reykjavíkurborg hefur gefið umsögn varðandi frumvarpið, en þar koma fram ýmsar áhyggjur borgarinnar ef dreifa má ösku frjálst hvar sem er.
„Eigandi eða umráðamaður lands er mögulega ekki sáttur við dreifingu ösku á sínu landi þrátt fyrir vilja hins látna. Þó að það sé óheimilt að merkja staðinn þá er hægt að merkja með öðrum leiðum þ.e. með því að tala um hvar öskunni var dreift,“ er sagt í umsögninni.
Borgin telur að útivistarsvæði sveitarfélaga myndu mögulega verða eftirsótt fyrir öskudreifingu.
„Eðlilegt er að sveitarfélagið hefði eitthvað um það að segja hvort ösku yrði dreift á útivistarsvæði en auðvitað mætti hugsa sér að sveitarfélag skilgreindi ákveðið svæði þar sem heimilt væri að dreifa ösku.“
Því vill Reykjavíkurborg að það verði gert ráð fyrir leyfi landeigenda eða umráðamanns lands fyrir dreifingu ösku.