Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kallar eftir því að Reykjanesskaginn sé hafinn til vegs og virðingar í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Hann segir frá því að hann, eins og þúsundir Íslendinga, hafi gert sér gerð að gosstöðvunum í Geldingadölum – og það tvisvar.
„Hvílíkt sjónarspil sem blasir þar við öllum. Það er engu líkara en almættið hafi búið til fyrir okkur eldgosasýningarsal þar sem gestir geta virt fyrir sér ægikrafta náttúrunnar úr öruggri fjarlægð. Stríður straumur fólks er á þessar slóðir að nóttu sem degi og ekkert lát þar á.“
Hann segir að allur Reykjanesskaginn sé eitt náttúruundur og hafi hingað til verið vanmetinn sem slíkur og að það séu mikil sóknarfæri í eldgosinu.
„Og nú hefur eldgosið í Geldingadölum gefið af sér einstakt sóknarfæri sem við höfum ekki séð í 800 ár. Sóknarfæri til að nýta betur tækifærin sem leynast í allra augsýn á Reykjanesi. Við getum gert svo miklu, miklu betur í ferðaþjónustu á svæðinu, samhæft og samtengt upplifanir. Jarðsagan, náttúruperlurnar og útivistin í bland við verslun og þjónustu gefa okkur sem byggjum þetta svæði dauðafæri. Ímyndið ykkur bara upplifun ferðamanna sem sjá eldrautt eldgosið í Geldingadölum og hvíla svo lúin bein í himinbláu lóninu eftir göngu sem er eins og í landslagi tunglsins. Snæða ferskan fisk úr Faxaflóanum, fara í rómantíska göngu á Garðskaga og gista á einu af glæsihótelum svæðisins. Hugmyndaauðgi markaðs- og athafnafólks ætti að vera takmarkalaus þegar Reykjanesið er annars vegar,“ segir Vilhjálmur og kallar eftir því að skaginn sé loks hafinn til vegs og virðingar.
Hann segir að það sé undir stjórnmálamönnum komið að ýta undir atvinnusköpun og ferðaþjónustu og vernda náttúru og svæðið um leið.
„Látum ekki myrkur heimsfaraldurs villa okkur sýn því dagur er ætíð nóttu nálægur. Við höfum skýra framtíðarsýn. Landið rís á Reykjanesi. Þar hefst sóknin,“ segir hann að lokum.