Rekin út fyrir að vera ekki með grímu þrátt fyrir vottorð

Viðskiptavinur Rúmfatalagersins í Skeifunni var rekinn þaðan út í gær fyrir vera ekki með grímu þrátt fyrir að hafa rætt við tvo starfsmenn áður en hún fór inn í verslunina og sýnt þeim vottorð frá lækni sem sýnir að henni sé ráðlegt að vera ekki með grímu. Gríman sé heilsu konunnar hættuleg.

Konan deilir myndbandi af atvikinu á Facebook-hóp sem ber heitið Coviðspyrnan Opinn Hópur en meðlimir hans virðast helst eiga það sameiginlegt að vera á móti stífum sóttvarnaaðgerðum. Í færslunni lýsir konan því hvernig verslunarstjóri Rúmfatalagersins hafi tekið harkalega í hana og ætlað að leiða hana út úr versluninni. Greip hún þá til símans og tók upp myndband af aðstæðunum.

„Áður en ég fór inn í búðina talaði ég við tvo starfsmenn, sýndi þeim vottorð og skilríki og þeim fannst sjálfsagt að hleypa mér inn,“ skrifar konan. Hún ætlar að leggja inn kvörtun vegna starfsmanns Rúmfatalagersins. „Hann tók harkalega í handlegginn á mér og ætlaði að leiða mig út úr búðinni sem varð til þess að ég tók upp restina af ruglinu.“

„Ef hlustað er vel, þá heyrist gagg í öðrum viðskiptavinum garga a mig “þú ert að leggja aðra í hættu. Ekki gaman fyrir félagsfælna. Sé mest eftir að hafa ekki beðið eftir lögreglunni, en barnið var heima að bíða eftir mér, hef engan tíma til að vera handtekin."

Hér má sjá færsluna og myndbandið.

Fleiri fréttir