Í dag var tilkynnt um nýtt nafn á eldri deild Varmárskóla. Efnt var til nafnasamkeppni á þennan skóla sem 7. - 10. bekkur tilheyrir og fékk skólinn nafnið Kvíslarskóli en næsta skólaár verður Varmárskóla skipt í tvo skóla og mun Varmárskólanafnið fylgja yngri deildinni og því varð að finna nýtt nafn á eldri deild núverandi Varmárskóla.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, fyrrverandi þingkona Sjálfstæðisflokksins, er ein þeirra sjö sem átti tillöguna að nýju nafni skólans.
Ragnheiður segir á samfélagsmiðlum að það sé skemmtileg tilviljun að tillagan hennar hafi verið valin því fyrir 20 árum hafi hún verið þar skólastjóri.
„Mér finnst þetta, satt best að segja, pínu fyndið. Því fyrir rúmlega 20 árum hét skólinn Gagnfræðaskólinn í Mosfellsbæ og ég var þar skólastjóri, síðan varð til grunnskóli frá 1-10 bekk sem var Varmárskóli,“ segir Ragnheiður og að nú sé Varmárskóli aftur fyrir 1.-6. bekk og nýr skóli, Kvíslarskóli, sé fyrir eldri börnin.
„Lífið er undarlegt ferðalag, kæru FB vinir, njótið dagsins,“ segir Ragnheiður að lokum.
Á vef Mosfellsbæjar kemur fram að sjö tillögur bárust þar sem þetta nafn var lagt til og komu þær frá 7. GÁS og 10. KÁ í Varmárskóla, Ragnheiði Ríkharðsdóttur, Óðni Pétri Vigfússyni, Einari Jóhannessyni, Jóhönnu Magnúsdóttur og Krista Glan