Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi ráðherra og þingkona Sjálfstæðisflokksins á árunum 2007 til 2016, tók þá ákvörðun að fara í prófkjör árið 2006 eftir ferð í heita pottinn með vinkonum sínum. Ragnheiður Elín sagði skemmtilega sögu af þessu í þættinum Sunnudagssögur á Rás 2 í dag.
Eins og kunnugt er var Ragnheiður Elín iðnaðar- og viðskiptaráðherra á árunum 2013 til 2017, en hún ætlaði sér í raun aldrei að ná einhverjum frama í pólitík.
Í þættinum fór Ragnheiður yfir lífshlaup sitt en hún stundaði meðal annars nám í Bandaríkjunum og var aðstoðarmaður Geirs H. Haarde á árunum 1998 til 2005 þegar Geir var fjármálaráðherra.
„Haustið 2006 fer ég í mitt fyrsta prófkjör og það hefur nú verið gert grín að því í vinkonuhópnum,“ sagði Ragnheiður Elín en hópurinn kallar sig Primaverurnar þar sem þær hittust alltaf einu sinni í viku á Primavera. Í hópnum eru konur sem hafa meðal annars verið áberandi í Sjálfstæðisflokknum, til dæmis Ásdís Halla Bragadóttir, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir svo nokkrar séu nefndar.
„Haustið 2006 fórum við í bústað á Þingvöllum bara við stelpurnar. Við fórum og gengum og svo í pottinn og fengum okkur svo smá í aðra tána, allt í hófi að sjálfsögðu,“ sagði hún en það var í þessum sama heita potti sem ákvörðun um að hún færi í prófkjör fyrir Sjálfstæðisflokkinn var tekin.
„Þetta var svona hálfgert slys, þarna varð bara ákvörðunin tekin,“ sagði Ragnheiður Elín sem hringdi í eiginmann sinn, Guðjón Inga Guðjónsson, og tilkynnti honum tíðindin síðar um kvöldið.
Á þessum tíma var hún tiltölulega nýflutt í Garðabæinn og ekki beint þekkt andlit þó hún hafi vissulega verið aðstoðarmaður Geirs H. Haarde um margra ára skeið. Prófkjörið gekk vel og fór svo að Ragnheiður Elín var kjörin á þing sem fimmti þingmaður Sjálfstæðisflokksins í suðvesturkjördæmi.