Ragnar vill vera for­seti ASÍ: „Spennandi verkefni að taka að sér að leiða“

Ragnar Þór Ingólfs­son, for­maður VR hefur til­kynnt að hann muni bjóða sig fram til for­seta Al­þýðu­sam­bands Ís­lands á næsta þingi sam­bandsins sem fer fram dagana 10. til 12. októ­ber.

Þetta kemur fram í frétt Kjarnans en Ragnar til­kynnti um fram­boðið á fundi með starfs­fólki sínu nú í morgun. Hann hafði þá áður kynnt stjórn VR að hann hyggist bjóða sig fram.

Rúmur mánuður er síðan Drífa Snæ­dal fyrr­verandi for­seti ASÍ til­kynnti upp­sögn sína sem hún sagði að kæmi í kjöl­far "ó­bæri­legra á­taka" innan ASÍ

Ragnar Þór er sá fyrsti sem til­kynnir um fram­boð sitt til em­bættisins en hann hafði áður gefið út, í upp­hafi vikunnar, að hann myndi til­kynna um niður­stöðu sína í dag.

Sól­veig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar og Vil­hjálmur Birgis­son, for­maður Starfs­greina­sam­bandsins og VLFA höfðu áður úti­lokað að þau myndu bjóða sig fram til em­bættisins.

Hægt er að lesa meira hér.

Fleiri fréttir