Ragnar fagnar hundrað ára afmæli: Fyrrum aðalvarðstjóri sem var næst yngstur fimmtán systkina

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi frá því á Facebook í dag að Ragnar Bergsveinsson, fyrrverandi aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni í Reykjavík eigi hundrað ára afmæli í dag.

„Ragnar naut heimakennslu bæði í foreldrahúsum og svo að Látrum. Síðar stundaði hann nám í Reykjanesskóla í Ísafjarðardjúpi 1935-36 og í Íþróttaskólanum í Haukadal 1937-38. Eftir að hafa séð auglýsta stöðu lögregluþjóna í Reykjavík árið 1947 þá bókaði Ragnar fund hjá Agnari Kofoed- Hansen lögreglustjóra og nokkrum mínútum seinna var Ragnar orðinn lögreglumaður hjá embættinu.“

Hann var oftast kallaður „hundraðshöfðinginn“ af vinnufélögunum. „Á þessum árum í lögreglunni bar mest á lögreglumönnunum við umferðarstjórnun og umferðareftirlit. Einnig ýmis önnur verkefni. Allir lögreglumenn bera númer og var Ragnar svo heppinn að fá númerið 100. Eftir það var hann oft kallaður „hundraðshöfðinginn.“

„Árið 1964 varð Ragnar flokksstjóri, aðstoðarvarðstjóri 1966, varðstjóri 1. janúar 1968 og svo aðalvarðstjóri 1. mars 1979. Síðustu árin var hann svo aðalvarðstjóri í fjarskiptastöð lögreglunnar en þá var tæknin tekin að ryðja sér til rúms hjá lögreglunni. Lögreglan óskar Ragnari Bergsveinssyni og fjölskyldu innilega til hamingju með þennan merkisdag og í tilefni dagsins var honum færður blómvöndur.“

Hringbraut óskar Ragnari til hamingju með afmælið!

Fleiri fréttir