Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, segir að allar forsendur séu brostnar fyrir hörðum aðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins sem nú geisar. Það segir Áslaug Arna í pistli í Morgunblaðinu í dag. Þar spyr hún tveggja spurninga, hvort að aðgerðirnar hafi átt rétt á sér í upphafi faraldurs og hvort þær eigi rétt á sér nú.
Hún segir að í upphafi faraldurs, þegar ekkert var vitað og veiran var skæðari, hafi verið fyllilega rétt að bregðast við eins og gert var en núna séu ekki sömu forsendur til staðar. Stór hluti fólks sé bólusettur sem veiti þeim góða vörn gegn alvarlegum veikindum auk þess sem nýjasta afbrigði veirunnar, Omíkron, sem er ráðandi núna, sé ekki eins alvarlegt og þau fyrri.
„Það þarf alltaf að réttlæta með sterkum rökum það sem kalla má harðar aðgerðir ríkisins gagnvart daglegu lífi fólks. Það á tvímælalaust við þegar fólki er bannað að koma saman, það skikkað til að vera heima hjá sér, fyrirtækjum er bannað að hafa opið og svo framvegis. Þegar ný veira gerði vart við sig fyrir rúmum tveimur árum var ljóst að hún væri hættuleg og eftir tilvikum banvæn. Það var því eðlilegt að bregðast skjótt við, reyna eftir bestu getu að takmarka útbreiðslu hennar og vernda þau sem augljóslega voru viðkvæmust fyrir henni,“ segir Áslaug Arna í pistlinum þar sem hún segir að það verði að aflétta íþyngjandi takmörkunum eins fljótt og þær eru settar á.
„Að lokum má nefna að við búum við ýmislegt sem er okkur hættulegt, það er staðreynd lífsins. Við tökumst á við hættur með ýmsum hætti, leitum lausna og gerum eðlilegar ráðstafanir. Sem betur fer felast lausnirnar sjaldnast í því að fara ekki út úr húsi,“ segir Áslaug Arna.
Á morgun kynnir ríkisstjórnin afléttingaráætlun sína en þær takmarkanir sem eru í gildi núna gilda til 2. febrúar, eða til þriðjudags í næstu viku. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hefur sagt að honum þyki skynsamlegt að fara hægt í afléttingar. Það kemur í ljós á morgun hvað hann lagði til í nýjasta minnisblaði sínu til ráðherra en því skilaði hann honum í vikunni.