Ráðherra orkumála með skýr skilaboð á Suðurnes

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir brýnt að á Suðurnesjum setjist hluteigandi aðilar niður komist að niðurstöðu hvað varðar Suðurnesjalínu 2. Það segir hann í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.

„Bilun í yfirspennuvara í Suðurnesjalínu 1 olli því að 30 þúsund manna samfélag var rafmagnslaust í rúmlega tvo klukkutíma á mánudaginn var. Suðurnesja­lína 1 er eina rafmagnslínan sem leiðir á Suðurnesin en deilt hefur verið um lagningu Suðurnesjalínu 2 í tæpa tvo áratugi. Það má öllum vera ljóst að ef Suðurnesjasvæðið væri með tvítengingu eða svokallaða hringtengingu, líkt og flest önnur svæði, þá hefði ekki slegið út á mánudaginn,“ segir Guðlaugur Þór og að kjarni málsins sé sá að ef það hefði verið önnur tenging þá hefði þetta ekki gerst.

„Annað hvort þrætum við áfram um þessi mál og gleymum þeim fram að næstu bilun og tilheyrandi rafmagnsleysi eða þá að við ræðum okkur niður á lausnir og höfum kjark til þess að taka ákvarðanir. Mér finnst valið augljóst,“ segir Guðlaugur en hægt er að lesa greinina hér í heild sinni á vef Fréttablaðsins.

Fleiri fréttir