„Pólitíst ó­hæfu­verk“: Kristinn fagnar stuðningi við Ass­an­ge

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, fagnaði loforði Jean-Luc Mélenchon, leiðtoga vinstriflokka í yfirstandandi þingkosningum Frakklands, um að veita Julian Assange franskan ríkisborgararétt ef Mélenchon nær kjöri til embættis forsætisráðherra Frakklands.

„Hann lofar að veita Julian Assange franskan ríkisborgararétt ef hans liðssveit skilar honum í embætti og bæta ofan á það heiðursorðu ríkisins fyrir þjónustu við frönsku þjóðina,“ skrifar Kristinn í færslu á Facebook-síðu sinni. „Merki af þessu tagi eru mikilvæg og verða fleiri og fleiri.“

Kristinn benti á að ýmsir þjóðarleiðtogar og stjórnmálamenn hafi nýlega fordæmt meðferð Bandaríkjastjórnar á Julian Assange og sagðist vona að sumir þeirra, sem komust nýlega að kjötkötlunum eftir að hafa talað máli Assange úr stjórnarandstöðu, myndu beita sér í þágu hans með nýfengnu valdi.

„Andrés Manuel López Obrador, forseti Mexikó hefur boðist til að senda einkaþotu sína eftir Julian og hans fjölskyldu þegar hann losnar úr prísundinni í London. Lula da Silva sem kann að verða forseti Brasilíu áður en árið er á enda hefur hvatt Bandaríkjastjórn til að láta af ofsóknum gegn Julian. Cristina Fernández de Kirchner, varaforseti Argentínu lá ekki á óbeit sinni á þeirri ákvörðun Priti Patel, innanríkisráðherra Bretlands á föstudag að heimila framsal Julians.“

„Sama gerði Thorbjörn Jagland, fyrrverandi forsætis- og utanríkisráðherra Noregs á samfélagsmiðlum í gær og sagðist yfir því að hans flokkur gerði ekki meira fyrir Julian. Annalisa Baerbock fordæmdi aðförina að Assange áður en hún varð utanríkisráðherra Þýskalands nýverið og við bíðum enn hvernig hún ætlar að beita sínu embætti. Sama á við um Anthony Albanese sem lýsti því áður yfir að það væri nóg komið og Julian ætti að geta snúið heim. Hann er rétt að koma sér fyrir sem nýr forsætisráðherra Ástralíu.“

Kristinn segir ljóst að ill meðferð stjórnvalda á Assange setji hræðilegt fordæmi og sé hrein og bein aðför gegn frjálsri blaðamennsku. „Það er öllum ljóst að málið gegn Julian Assange er pólitíst óhæfuverk og algerlega ljóst að aðeins öflug pólitísk skilaboð um að þetta geti ekki liðist munu breyta hans stöðu.“

Fleiri fréttir