Páll Magnússon, þingmaður og fjölmiðlamaður, snýr aftur í sjónvarpið næsta miðvikudag á sjónvarpsstöðinni Hringbraut, og alla miðvikudaga að alþingiskosningum þann 25. september, með þættina Pólitík með Páli Magnússyni.
Í viðtali á vef Fréttablaðsins segir Páll frá því að hann hafi fallist á að taka að sér vikulega þætti fram að kosningum þar sem rætt verður við stjórnmálaleiðtoga allra flokka. Þátturinn er um 45 mínútur og verður að sögn Páls þrískiptur. Fyrst verða báðir viðmælendur „yfirheyrðir“ af Páli í um tólf til fimmtán mínútur. Á meðan annar er yfirheyrður hlustar hinn. Að því loknu ræða þau öll þrjú saman.
„Ég féllst á að taka að mér pólitíska þætti núna í aðdraganda kosninganna. Vikulega þætti sem hefjast á miðvikudag og í fyrsta þætti verða Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins,“ segir Páll í samtali við Fréttablaðið.
Páll segist ekki telja það vandamál að hann komi beint af þingi heldur muni það gera þættina áhugaverðari og dýnamískari auk þess sem það sé ekkert leyndarmál hvaðan hann kemur.
Viðtalið er hægt að lesa í heild sinni hér.