Pétur er allt annað en sáttur með Fosshótel: „Þetta eru bara undan­brögð og undan­skot,“

Foss­hótel Reykja­vík vilja að­eins greiða helming húsa­leigunnar fyrir sex mánuði frá 1. apríl til 30. septem­ber í fyrra, þrátt fyrir að hafa fram­leigt hótelið til ríkisins fyrir 85 milljónum króna hærri upp­hæð en sem nemur leigunni.

Frá þessu greinir Fréttablaðið í morgun, en Pétur Guð­munds­son, hjá Í­þöku fast­eigna­fé­lagi, sem á Þórunnar­tún 1 þar sem Foss­hótel Reykja­vík er til húsa, er allt annað en sáttur.

„Þetta eru bara undan­brögð og undan­skot,“ segir hann.

Í héraðs­dómi var dæmt að hótel­fé­lagið ætti að greiða Í­þöku 66,7 prósent af um­saminni leigu fyrir tíma­bilið 1. apríl 2020 til 31. mars 2021. Það mál bíður nú úr­lausnar Lands­réttar.

„Þeir eru að fá yfir átta hundruð milljónir frá ríkinu fyrir leigu á hótelinu og veitingar en borga okkur bara eitt­hvað ríf­lega tvö hundruð milljónir,“ segir Pétur

Þá segir Pétur: „Þeir voru að borga öllum nema okkur og það má ekki ef þú ert í greiðslu­skjóli,“. Þar vísar hann til þess að um sama leyti og Foss­hótel hafi verið leigt til ríkisins sem sótt­varna­hótel hafi hótel­keðjan komist í greiðslu­skjól frá kröfu­höfum.

Hægt er að lesa nánar um málið á vef Fréttablaðsins

Fleiri fréttir