Tískubloggarinn Pattra Sriyanonge eignaðist annað barn sitt í vikunni með knattspyrnumanninum Theódóri Elmari Bjarnasyni. Greint var frá fæðingu dóttur þeirra í gær en í gærkvöldi greindi Pattra frá því að á meðan fæðingunni stóð, sem voru um 36, klukkustundir, hafi hún verið með Covid-19.
Vegna þess þurfti spítalinn að grípa til ýmissa ráðstafanna til að vernda sitt starfsfólk.
„Allar yndislegu ljósurnar á LSH með okkur í gegnum súrt og sætt í þessa tvo daga,“ segir Pattra í „story“ á Instagram þar sem hún deilir með lesendum sínum myndum af fæðingunni.
„Við vorum í fæðingu í einangrun vegna Covid og þær gerðu okkar upplifun ógleymanlegan þrátt fyrir að þurfa vinna allan tímann í þessari múnderinu,“ segir Pattra og deilir mynd af ljósmóður í hlífðarfatnaði.
Daman á nokkuð eftirminnilegan afmælisdag en hún fæddist 22.2.22.
„22/02/22 á slaginu 20:00 mætti draumadísin okkar eftir 36 klst fæðingu,“ sagði Pattra á Instagram þegar hún deildi fyrst fréttunum af fæðingunni.
„Algjörlega mögnuð stund!! Takk fyrir að hugsa til okkar fallega fólk. Við getum ekki beðið eftir að fara heim að njóta lífsins með Atlasi stóra brósa.“